Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Side 1

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Side 1
51ÓmnHHRBLR31Q U1K1H6UR ÚTOEFANDI: FARMANNA- 00 FISKIMANNASA MB AND ÍSLANDS III. árg., 7. tbl.________________________________________________________________Reykjavik, júli 1941 Fáir kunna sig í góðu veðri heitnan að búa Á meSan siglingar um áhættusvæðin gengu vel voru menn í landi farnir að leggja það þannig út, að hættulaust væri aðð sigla, og var það útskýrt á ýmsan hátt. Nánustu vandamenn sjómannanna lifðu þó stöðugt í ótta um líf ást- vina sinna, meðan þeir voru úti á áhættusvæð- inu. Sjómennirnir sjálfir vissu að það var að eins tilviljun, sem réði því hvort þeir kæm- ust heilu og höldnu eða ekki. Þeir voru sí- fellt að bjarga skipshöfnum af skipum, sem sökkt var á siglingaleiðum þeirra, þeir vissu að tundurduflum var hent af flugvélum í fljót- in, sem þeir þurftu að sigla um. Og þeir horfðu á flugvélar ráðast á skip við hliðina á sér og urðu fyrir fiugvélaárás. Þegar árásin á „Fróða“ var gerð og Reykja- borg og Pétursey var sökkt, kom það eins og reiðarslag á fólk í landi, sjómennirnir sem voru að sigla, hörmuðu örlög félaga sinna, en vissu að svona hlaut fyr eða síðar fyrir einhverjum þeirra að fara. Útgerðarmenn stöðvuðu skip sín, þeim ógn- aði að ráða menn út á þau til slíkra ferða. Ást- vinir sjómannanna margir, kröfðust af þeim að þeir hættu að sigla. Sjávarútgerðin hafði flutt þjóðinni millj- ónagróða. Margir sem aldrei áður vissu hvað sjómennska eða sjávarútgerð var„ voru farnir að „gera út“ og velta inn peningum. Allar kirn- ur voru settar á flot, sem varla héngu saman áður, gullæðið greip óstjórnlega um sig. Og annað æði óx líka, skattaæðið óx það mikið, að fulltrúar þjóðarinnar á Alþingi fengu óbeit á sjálfum sér, og fóru allskonar kollhnýs í mál- inu. Siglingastöðvunin mildaði svolítið hina æstu hugi. Nokkur tími leið. Þá fara að koma fram nöldursraddir um að skipin skuli ekki sigla. Þó standa yfir samningar um tilhögun á sigl- ingum eftir hið breytta viðhorf, en áhugi fyr- ir málinu er ekki mikill, hvorki af hálfu sjó- manna eða hinna reyndu og raunverulegu út- gerðarmanna. Á þessu tímabili hleypir eitt virðulegasta dagblað landsins, að í dálkum sínum lúalegri grein í garð íslenzku sjómannanna, þar sem dylgjað er um, að þeir þori ekki að sigla. En Færeyingar, sem áður fyr hafi litið upp til þeirra sem þeim fremri, haldi áfram að sigla. Þannig hafi hlutfallið snúist um, að við megum líta upp til þeirra. Slík skriffinnska hefði betur átt heima í sama dálki, og sú heimsku fyndni að samlíkja því um bændur út um allt land, að þeir væru í eins mikilli hættu og sjómennirnir, ef flugvél kæmi yfir einn bæ og yrði þar einhverjum að bana. Islenzkir sjómenn vilja ekki troða lofið nið- ur af Færeyingum, en benda má á, að færeyska þjóðin, þó smá sé, gerir betur við sjómenn sína heldur en sú íslenzka. Færeyskir sjómenn hafa haft meir en helmingi hærri laun fyrir sína áhættu, og þeir hafa fengið vopn til þess að verja sig með og margoft bjargað lífi sínu með þeim, þó ófuilkomin væru. Eitt enn, meðan íslenzkir sjómenn sigldu um áhættusvæðin með meðal þénustu um 600 kr. á mánuði, gengu ábyrgðar litlir strákar og launsingjalýður, í landi og fussuðu við minni launum við áhættulausa daglaunavinnu, en 800—1000 kr. á mánuði. Hver vill svo lá, fjöl- VÍKINGUE 1

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.