Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Page 5
„Hekla"
r
a
skofsn í kaf
leið \\\ Ameríku
27. júní lagði es. Hekla af stað úr höfn í
Reykjavík, áleiðis til Halifax Nova Scotia, hafði
Eimskipafélag íslands leigt hana til fararinnar
til þess að sækja ýmsar nauðsynjavörur en fór
ólestuð. I þrjár vikur spurðist ekkert til skips-
ins, en þá barst eigendum þess fregn um það
frá brezku flotastjórninni hér, að kanadiskt
herskip hefði bjargað sjö mönnum af Hekiu...
Var aðstandendum tilkynnt þetta strax áður
en nokkuð kvisaðist út um atburðinn. Síðar
komu svo fregnir um hverjum hefði verið bjarg-
að. En að einn mannanna hefði dáið á leiðinni
til lands. Öll nánari atvik eru ókunn, nema hvað
frést hefir að skipinu var sökkt með tundur-
skeyti 29. júní, eftir tveggja sólarhringa ferð,
sprengingin varð mikil og að annar björgunar-
bátur þess brotnaði strax, skipið sökk á tveim-
ur og hálfri mínútu...
Hekla hafði tvo stóra björgunarbáta, var
annar þeirra með vél, en báðir með þeim út-
búnaði, sem nú tíðkast. Augljóst virðist vera
að skotið hafi verið á skipið fyrirvaralaust.
Enn er höggið stórt skarð í hóp íslenzkrar
sjómannastéttar. Lengi trúðu menn því, meðan
allt gekk vel, að hætta sjómanna væri ekki eins
mikil og af væri látið. Svo komu hinar hörmu-
legu staðreyndir, þegar fyrstu árásirnar hóf-
ust. Þegar Ameríku siglingar byrjuðu töldu
menn þær hættuminni og sumir hættulausar.
Nú hafa hinar kaldranalegu staðreyndir talað
aftur. Hver einasti sjómaður sem leggur hér
frá landi, leggur sig beint í yfirvofandi lífs-
hættu, þess ætti þjóðin vel að minnnast. Sorg-
in sækir nú heim fleiri syómannaheimili, þar
sem fyrirvinnan er hrifin burt og ástvinirn-
ir koma aldrei aftur.
Hér fara á eftir nöfn hinna fjórtán manna,
sem fórust með „Heklu“:
Einar Kristjánsson, skipstjóri, Reynimel 44,
f. 23. des. 1895. Kvæntur, 1 barn.
Kristján Bjarnason, 1 stýrimaður, Hrefnugötu
3, f. 3. janúar 1902. Kvæntur, barnlaus.
Jón H. Kristjánsson, 2. stýrimaður, Framnes-
veg 56, f. 13. sept. 1911. Ókvæntur.
Jón Erlingsson, 2. vélstjóri, Karlagötu 21, f. 25.
apríl 1908. Kvæntur, 6 börn.
Ásbjörn Ragnar Ásbjörnsson, aðstoðarvélstjóri
Brekkust. 6 A, f. 19. janúar 1917. Ókvæntur.
Sveinbjörn Ársælsson, loftskeytamaður, Lauga-
veg 137. f. 5. okt. 1915. Ókvæntur.
Hafliöi Ólafsson, háseti,, Freyjugötu 35, f. 5.
maí 1894. Kvæntur, 2 börn.
Bjarni Þorvarðarson, háseti, Vesturgötu 38, f.
1. júlí 1916. Kvæntur, 1 barn.
Sigurður Þórarinsson, háseti, Mánagötu 21, f.
7. nóv. 1915. Kvæntur, 1 barn.
Viggó Þorgilsson, háseti, Hringbraut 132, f.
2. marz 1919. Ókvæntur.
Haraldur Sveinsson, háseti, Ránargötu 6, f. 30.
okt. 1907. Kvæntur.
Karl Þ. Guðmundsson, Eskifirði, f. 24. jan-
úar 1922. Það var hann, sem dó á leiðinni
til lands.
Matthías Rögnvaldsson, kyndari,,, Hjalteyri, f.
1. september 1915.
Sverrir Símonarson, kyndari, Holtsgötu 12, f.
27. sept. 1921. Einhleypur, fyrirvinna móður
sinnar.
En þessir sex komust lífs af:
Sigmundur Guðbjartsson, 1. vélstjóri, Túngötu
43, f. 10. ágúst 1908. Ókvæntur.
Ingibergur Lövdal, loftskeytamaður, Hring-
braut 78, f. 8. sept. 1921. Ókvæntur
Sigmundur Pálmason, matsveinn, Þverholt 5,
f. 3. maí 1900. Kvæntur, 4 börn.
Kristján B. Kristófersson, kyndari, Vífilsgötu
19, f. 9. janúar 1913, Kvæntur, 1 barn.
Sigurður Ólafsson, aðstoðarmatsveinn, Bald-
ursgötu 28, f. 5. marz 1920. Ókvæntur.
Vladimiras Kuopfmileris, f. í Kiev í Ukraine
15. apríl 1916. Ókvæntur.
VÍKINGUR