Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Side 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Side 8
Frá sjómannadeginum úii um land Sjómannadagurinn á Patreksfirði Sjómannadagurinn var hátíðlegur haldinn á Patreksfirði í fyrsta sinni 8. júní s. 1. Voru sjó- menn þar á staðnum einhuga um að minnast dagsins með hátíðahöldum, og gera þau sem bezt úr garði, þrátt fyrir allerfiða áðstöðu og nokkura byrj unarörðugleika. Helgihöldin hófust með sjómannaguðsþjón- ustu kl. IOV2 í Eyrarkirkju. Síra Einar Stur- laugsson messaði. Var ræða hans glögg og at- hyglisverð. Kirkjan var þéttskipuð fólki. Kl. 1 fór fram hópganga sjómanna. Gengu þeir fylktu liði syngjandi og undir fánum frá barnaskólanum og að íþróttavelli staðarins. Um gönguna mátti segja „að þar vantaði engan og þar var engum ofaukið". Fór hún vel fram. Við íþróttavöllinn var flutt ræða í tilefni dags- ins, hafði þá drifið að fjöldi manns; ræðuna flutti Einar Thoroddsen, stýrimaður. Að henni lokinni fór fram kappleikur í knattspyrnu milli sjómanna af togurum og bátum annarsvegar og úrvalsliðs knattspyrnufél. „Harðar“ hins- Knattspyrnulið sjómanua, Patreksfirði. vegar. Var leikurinn eftir ástæðum góður og lauk með sigri sjómanna, 3 mörk gegn 2. Þá var reiptog milli togaramanna og vélbátamanna. Sigruðu þeir fyrnefndu, en ekki auðveldlega, cg mátti lengi ekki á milli sjá. Kl. 16,00 fór fram kappróður. Kepptu fjórar bátshafnir, ein mynduð af sjómönnum á opnum vélbátum, ein af þilfarsbátum og hinar tvær af togurunum Gylfa og Verði. Róin var ca. 800 metra vegalengd. Fyrst að marki var róðrar- sveit Gylfa og hlaut hún að verðlaunum fagran silfurbikar, sem gefin var af Ó. Jóhannesson & Co. til þessar keppni. (Bikarinn er farand- bikar.) Næst var sveit þilfarsbátamanna, þá Varðar og síðast sveit trillubátamanna. Var margt manna viðstatt kappróðurinn, sem var spennandi og skemmtilegur, þó veður væri ekki ákjósanlegt. Þá fór fram sund og tóku 7 menn þátt í því. Ekki var um kappsund að ræða og því enginn fyrstur og enginn síðastur. Synt var 50 m. bringusund og auk þess sýndu nokkr- ir menn björgunarsund. Lokaatriði hátíðahaldanna var sameiginlegt borðhald sjómanna og gesta þeirra, og almenn- ur danzleikur á eftir. Fór borðveizlan glæsilega fram og voru menn glaðir og reifir. Sungið var undir borðum og ræður fluttar um margvísleg efni. Þátttakendur í veizlunni voru um 150. Veitingar hafði á hendi Guðjón Guðjónsson mat- sveinn og var það starf honum til mikils sóma. Að loknu borðhaldi var danz stiginn fram á morgunn. Yfirleitt má segja að dagurinn hafi tekizt með ágætum, og að hann hafi verið sjómönnum á Patreksfirði, svo og öðrum staðarbúum, til óblandinnar ánægju, gagns og sóma. Nefnd sú, sem hafði þunga undirbúnings dagsins á herð- um sér, og sá um alla framkvæmd, á óskiftar þakkir skilið. Sjómenn landsins eiga öfluga stuðnings og samverkamenn þar sem sjómenn Patreksfjarðar eru. Kristján Jónsson. VÍ KINGUIÍ 8

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.