Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Síða 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Síða 9
Fiski og Farmanna stef . . Sigurreifir sjómenn glaðir sækja björg á dýpstu mið, yfir breiðar ufsatraðir óhrætt siglir farmannslið. Ört þó rísi hrannir háar, höndin örugg ræður leið, þó á súðuin bylgjur bláar brjóti, er ferðin hraustum greið. Oft er telft á tvísýnt vaðið, tökum feilar hvergi í raun, tímum saman stýrt og staðið stundum fyrir vesæl laun. Ei er hikað áfram sækja út á ný um hrannarslóð, þá, sem skyldur skilja og rækja skelfir ekki veðrahljóð. Hópganga sjómanna, Patreksfirði. hverjum myndi ykkar óa aflaför til bjargar gjörð. Enginn þekkir æðru kendir æst þó freyði voldug Rán, huga mannsins hærra bendir hættu för og afla lán. Oft er hljótt um hetjudáðir, hildarleik við stormsins slátt, atburðirnir aldrei skráðir, Ægir sigrað lífsins mátt hefur þar, og hljóð er gröfin hana prýðir merkið bjart, minning þeirra er héldu á höfin, hættu myrkrið rýfur svart. !‘SSfti..7“ntr *z ................ pið sem hér við Húnaflóa, heiðurs standið dýrann vörð; pað er yndi oft að líta æfða hönd við stjóm á knör, járn þar engin berserk bíta, byrst er skipað, augun snör, ákvörðun á augnabliki, allt er gjört með festu og ró, aldrei sést í hættu að hiki hugur djarfur út á sjó. Kröpp er oft á kólgubrautum kappaleið og vosbúð hörð, Að afla vel og ógna þrautum oft er förin til þess gjörð. Vikingsblóð er enn í æðum, enn er lagt í hættu för. Sjómenn skrýddir söltum klæðum sigla djarft á litlum knör. Sjómannslið með hraustar hendur, hugar ró og trygga lund. blessist ykkar óskalendur æfistarf með gull í mund. Signið stormsins svölu hríðar, sólin lýsi ykkar braut. Hetjunafnið hljótið síðar heiðurslaunin bestu, í þraut. Tileinkað sjómannadeginum á Drangsnesi 8. júní 1941. Kappróður m/b.-rnanna og skipshafnar b/v. Gylfa. 9 Hannes á Hólmi. VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.