Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Síða 13
Prófsveinar Stýrimannaskólans 1916
Prófsveinar Stýiimannaskólans 1916, stadcl-
ir á pingvöllum 21. júní 1941, sendu Guðm.
Hannessyni, próf., símskeyti og þökkuðu hon-
um fyrir „ágæta kennslu og ráðleggingar".
Hefir hann Ijeðið Sjómannablaðið Víking fyr-
ir eftirfarandi greinarstúf:
Ég þakka ykkur öllum hjartanlega fyrir vin-
gjarnlegt símskeyti þann 21 júní. Það gleöur
gamlan kennara að fá vinarkveðju frá gömlum
nemendum, og þá ekki síður að vita til þess, að
þeim hefir farnast vel og margir þeirra komizt
í tölu nýtustu manna þjóðfélagsins.
Mér eru kennslustundirnar í Sjómannaskól-
anum engu síður minnisstæðar en í Háskólan-
um, og þar þóttist ég sjá marga efnilega menn.
Mér er líka minnisstæð heimili margra sjó-
manna í Reykjavík, meðan ég var þar héraðs-
læknir. Læknarnir voru sammála um það, að
þau bæru af heimilum flestra annarra stétta.
Svona á þetta að vera: Gott skip á sjónum
og gott heimili í landi!
Islenzku sj ómennirnir eiga ekki að vera neinn
ruslaralýður. Og þeir eru það heldur ekki! Ætti
að fara í mannjöfnuð milli stétta, er mér nær
að halda, að sjómannastéttin bæri af okkur öll-
um hinum.
Ég skal ekki tala um störf íslenzku sjómann-
anna á sjónum eða framkomu þeirra erlendis.
Fyrir horttveggja hafa þeir hlotið alþjóðarlof
— og unnið til þess. En mér finnst, að ég hafi
kynnst þeim frá nýrri hlið í nýju sjómannablöð-
unum. Einnig þau eru þeim til sóma, og margar
greinar betur ritaðar en hjá okkur lærðu mönn-
unum.Og hver er nú meiri rímsnillingur en örn
Arnarson ?
Gamli Stýrimannaskólinn var mér ætíð þyrn-
ir í augum, og ég skammaðist mín fyrir, hversu
illa ríkinu fórst við sjómennina, hvað húsnæði
snerti og allan aðbúnað. Nú er loksins komin
hreyfing á það mál að byggja nýjan skóla, sem
sé samboðinn íslenzku sjómannastéttinni og
geri kennsluna auðveldari en áður var. Það væri
höfuðskömm, ef þetta kæmi ekki bráðlega í
verk. Og þá má heldur ekki gleyma lækninum,
sem á að kenna „hjálp í viðlögum“.
Ég þakka ykkur aftur fyrir vel kveðin orð
þann 21. júní.
Lifið heilir!
Guðmundur Hannesson.
Fimmtugur
G. J. Fossberg kaupmaður
Fossberg nam vélfræði í Kaupm.höfn og lauk
þar prófi árið 1914. Réðist síðan til Eimskipa-
félags Islands og varð fyrst 2. vélstjóri á e. s.
Goðafoss hinum fyrri, starfaði síðan á ýmsum
skipum félagsins og ríkisstjórnarinnar.
Árið 1922 hætti hann sjóvinnu og stofnaði
verzlun með vélanauðsynjar hér í bænumífélagi
við V. Paulsen. Tveim árum síðar slitu þeir
félagsskapnum og stofnaði þá Fossberg véla-
verzlunina sem hann hefir rekið síðan með
niiklum dugnaði.
Fossberg hefir tekið virkan þátt í félagsstarfi
vélstjóra og átt sæti í stjórn Vélstjórafélags Is-
lands um langt skeið.
Fossberg er vinmargur. Félagslyndi, fórnfýsi
og glaðiyndi eru áberandi í fari hans, en það
eru megm einkenni góðra mannakosta. „Víking-
ur“ óskar honum hjartanlega til hamingju með
afmælið og ókonma æfidaga.
13
VÍKINGUR