Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Qupperneq 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Qupperneq 16
I. /6. Varð kona að nafni Pálína S. Jóhannesdóttir, Snœlandi við Elliðaár, undir brezkum flutn- ingabíl og beið bana. * 4. /6. Hafin leit að vclbátnum „Hólmsteinn" frá pingeyri, sem ekki hefir komið að landi úr róðri þann 30 f. m. — Leitin bar engan árangur. — Hinsvegar fundust úr bátnum nokkrir lóðastampar, sem báru greinileg merki eftir sprengjubrot. Iír báturinn nú tal- inn af. A honum var 4 manna á- höfn, allt ungir menn. — • * 5. /6. Fór fram Íslandsglíman- og vann Kjartan Guðjónsson bvorutveggja titilinn, glímukong- ur og glímusnillingur íslands. * 6. /6. Fimmtugur Guðtnundur Vilhjálmsson framkvœmdastjóri Eimskipafélags Islands. * 7. /6. Keypt nýtt vélskip til landsins og er eigandi þess Oskar Halldórsson útgerðarmaður. — Er skipið keypt í Svíþjóð og varð hér „inn lygsa“ þegar styrjöldin skall yfir.. Skipið er 111 smál. að stœrð brúttó, Smíðað úr cik. Heit- ir það nú „þórður Sveinsson". * 8. /6. Sjómannadagurinn hald- inn hátíðlegur víða um land. * 10./6. Franski ræðismaðurinn á íslandi tilkynti ríkisstjórninni, að hann hafi beðist lausnar sem franskur ræðismaður hér á landi. * Flugvélin „Haförnin" sá um 20 síldartorfur við Málmey og einn- ig nokkurra síld við Haganesvík. * II. /6. Samþykkt á Alþingi hreyting á lögum um húsaleigu, sem heimilar hækkun húsaleigu í samræmi við aukinn viðhalds- kostnað. * 12./6. Samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar hefir innflutningur í maímánuði mumið 8,4 milj. kr. en útflutningurinn 17,8 milj. kr. Er þá verzlunarjöfnuður í maí- VÍKINGUR mánuði hagstœður um 9,4 milj. kr. ♦ Sett 5. þing Farmanná- og Fiski- mannasamband íslands í Reykja- vík. * 14. /6. Samþykkt á Alþingi lög um ríkisstjóra íslands. * Talið er víst að Bretar muni greiða það verð fyrir saltfisk ís- lendinga og ýmsar tegundir af hraðfrystum fiski, sem farið hefir verið fram á.Hinsvegar mun verð- ið á nýja fiskinum vera um 12% lægra en tilboð íslendinga liljóð- aði upp á. — Síldarlýsi munu þeir og vilja borga sæmilegu verði en í síldarmjöl hefir ekkert til- boð komið. — * 15. /6. Mb. „Pílot" frá Njarðvík- um kom með 14 skipsbrotsmenn til Reykjavíkur. Voru mennirnir, sem báturinn fann í björgunar- bát undan Reykjanesi, af norsku skipi, sem sökkt hafði verið með fallbyssuskotum frá kafbáti.Höfðu mennirnir verið 4 sólarhringa að hrekjast í bátnum, en allir voru þeir ósærðir. þrír þeirra voru nokkuð þjakaðir af vosbúð og voru fluttir á sjúkrahús. — Sjö manna af norska skipinu er saknað. — * 16. /6. Afgreitt sem lög frá Al- þingi frumvarp um samning Við- skiptaliáskólans og lagadeildar. * Á aðalfundi Útvegsbanka ís- lands h.f., höldnum 14. þ. m., var upplýst að reksturshagnaður bankans síðastliðið ár, hefði orð- ið kr. 1.420.000. 17. /6. Kosinn í sameinuðu Al- þing i fyrsti ríkisstjóri íslands. Varð Sveinn Björnsson fyrver- andi sendiherra fyrir valinu. Hlaut hann öll greidd atkvæði nema eitt. * 18./6. Eimskipið „Hvassafell", eign Kaupfélags Eyfirðinga, strandaði á Gvendarnesi milli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarð- ar. Var skipið á Icið út til Eng- lands hlaðið ' ísvörðum fiski. Mannbjörg varð, en talið er víst að skipið náist ekki út. * 21. /6. Tilkynnt opinberlega að herra cand. juris Agnar Kl. Jóns- son hafi verið skipaður vararæð- ismaður íslands í New York, frá 15. maí s. 1. * 22. /6. Fimmugur Trausti Ólafs- son efnafræðingur, deildarstjóri í Atvinnudeild Háskólans. * Samkvæmt opinberum skýrslum var búið að flytja út frá 1. jan. til 31. maí þ. á. 56% miljón kg. af ís- fiski fyrir 56% miljón króna. — Heildarútflutningur þessa fyrstu 5 mánuði ársins nam tæpum 82 miljónum króna. * Við síðasta bæjarmanntal (haustið 1940) voru Reykvíkingar taldir vera 38917 að tölu. — * 23. /6. María Markan söngkona liefir verið ráðin að Metropolitan óperunni í New York. * Ákveðið verð á hræðlusíld, kr. 1200 fyrir málið. Síldarverksmiðj- ur ríkisins tilbúnar að hefja vinnslu þann 10 n. m. — * 16 n.F. HAMAR Umboðsmenn fyrir hina heimskunnu SÍMNEFNI: HAMAR, REYKJAVÍK. HUMBOLDT DEUTZ-DIESELMÓTORA FRAMKV.STJ.: BEN. GRÖNDAL, CAND. POLYT.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.