Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Page 21

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Page 21
Á sænsku skipi 3500 DW smál., kom fyrir vélabilun nokkuð einkennileg, sem betur fer. Skipið var á leið frá Vesturströnd Englands til Cap Verde eyja. Hvassviðri var á og mikill sjór. Aðalvél skipsins var venjuleg þrígengis- eimvéi. Veiti- og austurdælur dregnar af L.þ. vél með vogarstöngum, en svalavatnsdæla sjálf- stæð. Síðari hluta dags tók aðallega fram við M.þ. sveifarás að hitna, og varð að stöðva vél- ina. Þegar orsakanna var leitað, kom í ljós„ að fremri M.þ. sveifarás-armur var rifinn einls' og meðfylgjandi mynd sýnir. Náði sprungan inn í legið, og hafði flegið hvítmálminn upp og var hann pressaður inn í rifuna. Var þetta svo alvarleg bilun, að ekki voru tök á, að halda ferðinni áfram. Til þess að reyna að ná höfn hjálparlaust, tók yfirvélstjórinn þá ákvörðun að gera tilraun með að nota Lþ. vélina eina. H.þ. og M.þ. skyttur voru nú teknar úr H.þ. og M.þ. bullur settar í topp og festar upp með skorðujárnum. Einnig voru H.þ. og M.þ. úr- skeiðishringir teknir í sundur, og skyttustengur og bogar hengdir upp. Þá var fremmri hluti sveifarássins með biluninni tekinn úr sambandi. Margar tilraunir voru nú gerðar til þess, að koma L.þ. vélinni í gang. Sveifarásnúm var snúið þannig, að hann var kominn lítið eitt yfir botn-stillingu, og þannig reynt að hrinda honum yfir topppunktinn með snöggu inn- streymi (paaslipp). Tókst þó ekki að koma vél- inni í gang fyrr enn lagt var 6 m.m. undir L.þ. úrskeiðisstöng. Katlarnir voru búnir yfirliitunartækjum Var að sjálfsögðu lokað fyrir þau. Ketilþrýst- ingurinn var settur svo mikið niður, að inn- streymisþr. í L.þ. var aðeins 1,5 Atm. Það tókst að halda 80% undir þr. (Vacuum) í eimsvala. Með þessu fór vélin nú 48 sn. en skipið gekk 5—6 mílur. Venjul. sn.hraði var 68 sn. og hraði skipsins 9,5 mílur. Var nú tekin stefna til Lissabon, og eftir 11/2 dags ferð var komið í landsýn. En nú kom nýtt vandamál til sögunnar. Eins og vélin var nú, var hún ónothæf við beitingu í höfn. Komst skipið því ekki inn nema með aðstoð. Var því ákveðið að setja vélina aftur í samt lag. Var þetta mjög erfitt og áhættusamt eins og á stóð, cn það heppnaðist og skipið komst í höfn af cigin rammleik. Öll þessi vélavinna var framkvæmd í vondu veðri og miklum veltingi, og mesta furða að enginjneiðsl skyldu af hljótast. í Lissabon var skipt um sveifarás, varaás- inn settur í, og fóru til þess 9 dagar. Fyrir að koma þannig skipi til hafnar án aðstoðar annara skipa fengu bæði yfirvélstj. og skipstjóri álitlega peningaupphæð að gjöf frá vátryggingarfélaginu í viðurkenningar- skyni. Eftir „Tidskrift for Maskinvæsen". Skýring myndarinnar: 1. Sprunga M.þ. sveifarásarm. 2. M.þ. úrskeiðisskífa fyrir áfram. 3. M.þ. úrskeiðisskífa fyrir afturábak. 4. Aðalleg. 5. Aðalleg. 6. L.þ. úrsk. skífa fyrir áfram. 7. L.þ. úrsk. skífa fyrir afturábak. H. J. Tilkynning frá breska flotamálaráðuneytinu Samkvæmt alþjóðalögum er þannig gengið ft’á öllum breskum tundurduflum, að um leið og þau losna úr festum.stafar engin hætta af þeim. Þó er þetta ekki einhlýtt og gæti brugðist í einu tilfelli af hundrað. Samt hefir þó ekkert íslenzkt 21 skip farast á brezku tundurdufli. Það vildi til fyrir skömmu, að færeyskt skip rakst á rekandi dufl, án þess að duflið springi. Þegar tónskáldið Franz Schubert vildi tilkynna vin- um sínum, að hann gæti ekki skemmt sér með þeim vegna peningaleysis, sem oft kom fyrir, þó lét hann bux- ur með úthverfum vösum hanga úti í glugganum hjá sér . Þetta átti að þýða, „ég get ekki verið með ykkur, því ég hef að eins tóma vasa“! VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.