Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Side 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Side 22
 af hafi Tómas Sigurðsson á Norðfúði i Ifí. frr: MérJ er víst óhæ'tt a3 fullyróa, að fáir séu þeif, áustfirzku sjömérínirnir, sem éigi kann- ast við Tómas Sigurðsson á Norðfirði, annað hvort af orðspóri eða þá persónulega. En Tóm- as er víðar þekktur en á Austurlandi. Þorri hinna eldri sjómanna í Vestmannaeyjum og flestum vérstöðVunum sunnanlands munu að einhverju leytö kannast við manninn. Það virð- ist því ekki ótilhlýðilegt að sjómannablaðið „Víkingur“ flytji mynd af honum og rifji ým- islegt það upp, er á daga hans hefir drifið. Með það í huga að ná tali af Tómasi fyrir blaðið, geng ég niður á Strandgötuna í Neskaupstað. Ég hugsa sem svo: „Illa er ég svikinn, ef Tóm- as heldur sig langt frá f jöruborðinu!“ — Þetta stendur allt heima. Tómas kemur neðan af bryggjum, brosandi, léttur í spori, hreyfur í máli og um allt hinn viðmótsbezti. Ég tek hann tali. Fyrst um aflabrögðin. Hvað þessi og hinn hefði aflað. Hvar hann hefði verið á sjónum. Hve lengi hann hefði verið í róðrinum. Hvern- ig veðrið væri úti o. s. frv. Tómas kunni góð skil á því öllu. Út frá þessari algengu samtals- byrjun, fer ég svo að „þreifa fyrir mér“ um aðalmerg málsins — upplýsingar um hann sjálfan og sjósókn hans. „Hvað ertu nú orðinn gamall og hvar ertu fæddur, Tómas?“ „Ég er orðinn hundgamall, blessaður vertu, — 68 ára, — bráðum sjötugur — fæddur að Sig- mundarhúsum í Reyðarfirði 4. des. 1872“. „Og hvenær byrjaðir þú svo að sækja sjó að staðaldri?“ „Ég var nú ekki gamall þá. Á 13. árinu byrjaði ég að róa með föður mínum, Sigurði Eiríkssyni skipstjóra, en á 17. árinu gerðist ég formaður í fyrsta skiptið á árabát föður míns“. „Varstu ekki strax aflasæll og heppinn?“ „Jú, það er mér óhætt að segja. VlKINGVE Allir, sem með mér hafa róið, hafa verið á- nægðir með hlutskipti sitt“. „Hvenær fluttir þú svo hingað til Norðfjarðar? “ „Um alda- mótin — ég var þá um þrítugt. Fyrst hélt ég úti árabát, sem ég átti sjálfur, en skömmu seinna keypti Lúðvík sál. bróðir minn1) lítinn vélbát, er hann nefndi „Víking“. Réðist ég þá til Lúðvíks sem formaður á „Víkingi“, síðar á „Sæfarann“, svo á „Gylfa“ og seinast á „Sæ- björgu“. Alls var ég formaður á bátum Lúð- víks í meira en 30 ár“. „Meðal annara orða: Einu sinni var mér sagt, að þú hefðir fundið miðið, þar sem Norðfirðingar hafa stundað veiðar svo mikið á undanförnum árum og sem kallað er „Gullkistan“ í daglegu tali?“ „Já, ekki get ég borið á móti því. Þá var ég á „Vík- ingi“. Það var tregur fiskur um vorið á vana- legu slóðunum. Ég fór þá að leita nýrra og lóðaði mig út með álunum. Þar setti ég í fisk — já, mikinn fisk, maður! Það var róandi í hann þar — fullur báturinn dag eftir dag! Ég var einn um hituna í nokkra daga, og skildu menn sízt hverju þessi uppgripaafli hjá már sætti. Enginn þeirra vissi, hvar ég var á sjónum. En þeir komust brátt að því, og var mér það í sjálfu sér ekki á móti skapi. Oft var harðsótt út í „Kistuna“ á 7—9 smálesta bát- um, þetta 35—40 mílur frá landi, t. d. í myrkri og haustsjóum. Þá var haldið út fram í okt. og nóvember, þegar mögulegt var, og var þó útbúnaði bátanna ærið ábótavant. Ekkert var línuspilið — allt dregið af handafli — engin lagningarrennan — ekkert stýrishúsið og lúk- ararnir þröngir og óvistlegir. En þetta smá- J) Hinn alkunni útgerðarmaður Lúðvílc Sigurðsson, er andaðist hér í jan. s.l. 22

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.