Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Page 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Page 23
batnaði og allt blessaðist furðanlega og langt fram yfir það. Og mikið fiskaðist á þessum ár- um — og á þessi ,,horn“. ,,Oft hefir þú fengið foraðsveður og vonda sjóa, Tómas, og ekki hefir æfinlega verið langt á milli lífs og dauða?“ „Ojæja, jú—jú! Ekki sízt í Kist- unni. Hann getur verið snöggur upp á lagið þar úti“. „Aldrei misstir þú samt mann, — eða hvað?“ „Nei, svo er fyrir þakkandi, og sömu mennina hafði ég ár eftir ár.“. „En hvenær fékkstu hann verstan, Tómas minn?“ ,,í>að get ég sagt þér — það var þegar við urðum viðskila, „Sæfarinn“ og ég. Það var víst í apríl 1918. Báðum bátum Lúðvíks bróð- ur, „Sæfaranum“ og „Sæbjörgu“, var þá hald- ið út frá Djúpavogi, ásamt fleiri bátum héð- an, sem ekki koma við sögu núna. Það mun hafa verið viku fyrir páska, að sú fregn barst okkur, að Hornafjarðarbátar hefðu nægan fisk á færi. Var þá ákveðið að leita þangað. Létum við, formennirnir á Lúðvíksbátunum, beita línu, sem við ætluðum að fara með, þó að við annars ætluðum aðallega að stunda handfærið. Við leggjum af stað frá Djúpa- vogi undir nótt í góðu veðri. Á „Sæfaranum“ voru auk mín: Gunnar Gíslason, vélstjóri, önundur Steindórsson, báðir til heimilis hér í bæ, og Stefán Erlendsson, Brekastíg 37 í Vest- mannaeyjum. Eftir sólarhrings útivist var á- kveðið að halda heim. Veður var eiginlega gott, dálítill sunnan kaldi, en allt í einu slétt- lygndi og varð blæjalogn um stund. Við vor- um komnir það áleiðis, að við sáum vel til Papeyjar. En óðum syrti að af nótt og svo tók að hríða. „Sæbjörgin“ fylgdist með okkur, enda var svo ákveðið, að bátarnir skyldu fylgj- ast að á heimleiðinni. Allt í einu skall á norðan frostbylur, eins snöggt eins og skot úr byssu. Man ég ekki eftir sneggri veðrabrigðum. Var nú farið að ráðslaga um, hvað gera skyldi. Dimmviðrið og rokið var óskaplegt og við, for- mennirnir báðir, og raunar allir bátsverjar, tiltölulega ókunnugir á þessum slóðum. Það ráð tókum við að dýpka á okkur og andæfa upp í unz birta tók af degi. Hríðinni létti með birtingunni að miklu leyti, svo að við fengum landsýn. Vorum við þá komnir suður fyrir Hvítinga. Rokið hélzt alltaf óbreytt með 12 stiga frosti. Við fylgdumst að á báðum bátun- um, og reyndum nú að grynnka á okkur og héldum til lands. Fer svo fram um nokkra hríð. Þá bar svo til að við fengum sjó á „Sæ- faranum", er færði milligerðir í lestinni úr skorðum og kastaði fiski og öðru út í aðra hliðina. Urðum við því að fara niður og lag- færa þetta og rétta bátinn. En þá misstum við sjónar á „Sæbjörgu". Hún var okkur gersam- lega horfin sýnum. — Sjórokið var ægilegt. Allt var ein hvíta. Sjólagið var vont, hörð og kröpp alda, en þó ekki afskaplega vondur sjór. Bátinn var tekið að yfirísa, en fátt höfð- um við til að berja af honum, annað en okk- ar eigin fætur. Reykpípan sprakk undir „kappanum" snemma morgunsins og var nú hvorki hægt að yla lúkai'inn eða „hita á katl- inum“. Nú kom til mála að reyna að ná höfn í Papey, en frá því var horfið, því að enginn okkafl: þekkti sig þar. Við héldum áfram til lands. Var þá um tvær leiðir að velja: skerj- ótta grunnleið, eða þá skipaleiðina — og hana tókum við. Sóttist okkur seint en slysalítið. Þegar við vorum komnir inn fyrir skei'ið Skor- bcin, stöðvaðist vélin skyndilega. Hefir vatn sjálfsagt komizt í olíuna. Tók okkur nú að reka all-ískyggilega, meðan verið var að koma vélinni í lag aftur. En þegar vélin var aftur komin í gang, gekk allt vel, þótt seint sæktist. „Sæfai’inn“ var góður bátur og fór vel í sjó. Alltaf var sama hvíta í'okið og frostið, enda var bátui'inn. þegar héo* var komið, orðinn svo yfir-ísaður, að slétt var af lestarkarmi út á skjólborð. Mastrið var lagt aftur á vélarhúsið og segl og stagir bundnir við það. Mátti svo heita, að það væri allt oi'ðið að einum klaka- klumpi og allt annað eftir því. En nú styttist óðum til hafnar. Þegar við vorum komnir inn að Svartaskeri, þóttumst við sama sem komnir heim. Eftir var svo sem 10—15 mínútna keyrsla inn að bryggju. En þá stöðvaðist vél’jn allt í einu og fór af eðlilegum ástæðum ekki af stað aftur, því að nú vorum við oi’ðnir olíu- lausii', enda var fei’ðin orðin sólai’hi'ing lengri en upphaflega stóð til og olíueyðslan tiltölu- lega meiri en tímalengdin. Tók okkur strax að reka undan veðrinu út í skei’jaklasann — sjómenn kannast við hann — og innan stundar bar okkur upp á smásker við svokallað Líf- ólfssker. Bátnum hallaði í fyrstu til lands á skerinu og komumst við allir upp í það fyi'ii'- hafnajrlítið. En þar var köld vist. Hinsvegar lá bátui'inn vel og vii'tist stöðugur á skei'inu. Hui'fum við þessvegna að því ráði, að leita okkur skjóls í bátnum, og vorum all-lengi um boi’ð (niðri í lúkar). En af því að sjór var flæðandi, hækkaði báturinn á skerinu. Allt í einu tekur hann til að velta og kastast til, unz hann nemur staðar á þeii’ri hliðinni, er að sjón- um vissi. Hafði hann þá brotnað all-mjög og fylltist þegar af sjó. Stóðum við í sjó upp fyrir kné þarna á lúkarsgólfinu. Við fluttum okkur þá upp á þilfar. Var nú all-breiður áll milli báts og skers og aðstaðan til bjöi’gunar vond. VÍKINGUR 28

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.