Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Qupperneq 27
Sjómannablaðið ,.Víkingur“
,,Víkingur“ kemur nú út í nýju formi. Sífellt
vaxandi vinsældir hans og kaupendaaukning
orsakar, að upplagið, sem upp á síðkastið hefir
verið um 3600, hefir þetta ár ekki nægt eftir-
spurninni, og verður því aukið að miklum
mun. Eins og verðlag er nú á öllu myndi slík
breyting ekki vera framkvæmanleg fjárhags-
lega, má t. d. benda á, að prentunarkostnaður
blaðsins er nú orðinn helmingi hærri en í fyrra,
auk hækkunar annara útgjalda. Það verður
því að taka til nýrra ráða. Með því að fella nið-
ur auglýsingasíður blaðsins, sparaðist svo
mikill pappír hjá prentsmiðjunni, að hún get-
ur afhent okkur 4500 eintök fyrir sama verð
og 3600 áður. Ritnefndin hefir því ákveðið að
taka til þessarar úrlausnar.
En auglýsingar eru stór fjárhagsliður í
blaðastarfsemi. Til þess að vega upp á móti
fækkun þeirra, höfum við snúið okkur til aug-
lýsendanna og þeir hafa góðfúslega gengið
inn á að færa þær í þéttari búning.
Margir sjómenn og aðrir kunna því illa, að
gefin eru út tvö blöð kennd við sjómenn, þ. e.
,,Sjómaðurinn‘'‘ og ,,Víkingurinn“. 1 byrjun
var forgöngumönnum ,,Víkingsins“ þetta ljóst.
Var strax gerð tilraun til þess að ná samvinnu
við mánaðarritið og fiskiritið ,,Ægi.r“, á þeim
grundvelli að ;,Ægir“ héldi sínu formi, en íar-
manna og fiskimannasamband íslands legði
honum til 24 síður í viðbót, með efni um fé-
lagsmál, og skemmtilestur fyrir sjómanna-
stéttina. Slíkri samvinnu var hafnað. Einnig
var snúið sér til forgöngumanna blaðsins ,,Sjó-
maðurinn“ um sameiningu blaðanna í eina stóra
heild, því var einnig hafnað. ,,Sjómaðurinn“
hefir ávallt verið skoðaður sem skemmtirit.
Var hann upphaflega 36 síður, vel til hans
vandað og flutti margt skemmtilegt. Nú hefir
,,Sjómaðurinn“ aðeins 24 síður af lesmáli, þ.
e., hefir verið minnkaður um 12 blaðsíður og
má vafalaust telja það gert af knýjandi nauð-
syn vegna þess, hve útgáfan er dýr.
,,Víkingurinn‘ er eina hagsmunamálgagn
sjómannastéttarinnar, það hefir því alltaf ver-
ið og er enn fyrsta boðorð þeirra manna, sem
staðið hafa í fylkingarbrjósti F. F. S. I., að
halda ,,Víking“ fast við það, að vera fyrst og
fremst tæki til þess að sporna við og ráða
bót á hve sjómannastétttin hefir verið afskipt
um réttingu mála sinna, á meðal þeirra, sem
völdin hafa.
Þess vegna hefir lesmál ,,Víkings“ að mestu
verið helgað umræðum um öryggis- og hags-
munamál. En maðurinn lifir ekki á einu sam-
an brauði. Þó að meginhluti sjómanna skilji
nauðsyn þessa, þá eru aðrir, sem ekki gefa
sig beint að slíku, láta það afskiptalaust, þó
þeir leiðist með, en vilja hafa blað með létt-
um sögum og frásögnum og öðru þess háttar.
Með tilliti til þessa verður lesmál blaðsins
aukið á þann hátt, að það verður sett þéttara,
sem svarar rúmum fjórum blaðsíðum, auk þess
verður í vissum tilfellum notað smáletur meira
en hingað til. Má því telja að lesmál blaðsins
verði aukið um fimm blaðsíður frá því sem
verið hefir. 1 stuttu máli verður breytingin sem
miðað er að, þessi: Auglýsingar felldar niður,
nema á kápu og ein eða tvær síður aftan við
lesmál. Þannig verða þær meir áberandi og
þess vegna verðmætari fyrir þá, sem auglýsa.
1 öðru lagi, lesmálið aukið þannig, að hægt er
að hafa meira af léttu efni en áður. Og í þriðja
lagi, með auknu upplagi nær blaðið til fleiri
kaupenda og máttur þess til stuðnings málefn-
um sjómannastéttarinnar verður margfalt
meiri.
Ýmislegt.
Ef gullfiskur er látinn í vatn, sem blandað er 1%
alkohóli, deyr hann innan 20 mínútna. 5% sterk blanda
drepur hann tafarlaust.
Hollendingar hafa fundið upp á, að frysta brauð-
vörur, og geta þær þannig geymzt óskemmdar um lengri
tíma.
Ef ekkert væri skrifað fyr en það væri orðið svo gott
að enginn ritdómari finnur galla á því, þá væri aldrei
neitt skrifað.
Frægðin kemur ekki til þeirra, sem hvíla á koddum
eða liggja undir sóltjaldi.
Dantc
I’rautseigja er það fyrsta, sem á að temja hverju
barni.
27
Rousseau
VÍKINGUR