Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Page 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Page 29
Hinn 3. þ. m. átti Aðalsteinn Pálsson skip- stjóri á togaranum ,Belgaum“ fimmtugsaf- mæli. Þótt nokkuð sé um liðið þá vill „Víkingur- inn“ samt ekki láta þessi tímamót í æfi þessa gagnmerka manns fara svo fram hjá, að hann ekki samgleðjist honum með það, sem af er æf- innar og árni honum allra heilla í framtíðinni. Það er að vísu ekki bókstaflega rétt að segja, að Aðalsteinn Pálsson sé ,„fæddur á sjónum“, en á góðu og gildu sjómannamáli mundi nú samt vera komist eitthvað þannig að orði þegar um hann væri að ræða. Aðalsteinn er Vestfirðingur að ætt og upp- runa fæddur á ísafirði en alinn upp í Hnífsdal, og eins og svo margir þar um slóðir, bæði fyrr og síðar, byrjaði hann að stunda sjó þegar í barnæsku. Reri hann fyrst á opnum báti með stjúpa sínum Sigfúsi Þórðarsyni í Hnífsdal en síðan á vélbátum og var orðinn formaður á slíkum bát 18 ára gamall.. Má segja,, að frá því hafi hann lengstum á sjónum dvalið og starfað. — Sjómennsku á togara hóf Aðalsteinn um þetta leyti, fyrst á „Jóni forseta“ hjá Jóni Sigurðssyni og síðar hjá Halldóri Þorsteins- syni. Komu brátt í Ijós hinir miklu kostir hans sem sjómanns og sem jafnframt bentu greinilega í þá átt, að hann myndi ágætlega faflinn til mannaforráða á hafinu. Hann var afrendur að afli og þótti atfylgi hans eins oft og einatt betra en margra tveggja annara. Þá var hann ekki síður ósérhlífinn og kappsfullur, en þó jafn- framt athugull og aðgætinn. — Þessir kostir sameinaðir, að viðbættri þeirri sérþekkingu og i'eynslu, sem hann með árunum hefir aflað sér hafa orkað því, að hann má nú hiklaust telja einn þeirra manna í íslenzkri sjómannastétt, er skipa sess sinn með einna mestri prýði og sóma. — Eftir að Aðalsteinn Pálsson hafði gengið í stýrimannaskólann og lokið þaðan prófi, gerð- ist hann stýrimaður á togara. En áður en langt liði varð hann skipstjóri á togara, fyrst á „Ingólfi“ Arnarsyni“, en það skip var, eins og fleiri, selt til Frakklands eftir heimsstyrjöld- ina fyrri. Þá tók Aðalsteinn við skipstjórn á „Austra“, sem Kárafélagið keypti frá Eng- landi og síðar var hann skipstjóri á „Kára Sölmundarsyni, sem sama félag átti. Er það félag hætti störfum tók hann við skipstjórn á togaranum „Belgaum“ og hana hefir hann enn á hendi. — Jafnan hefir hann verið framúr- skaranndi fengsæll um afla á skip sitt og er öðru leyti giftudrýgsti um alla skipstjórn. Eitt er það enn, sem einkennir Aðalstein Páls- son — eins og marga beztu menn sjómanna- stéttarinnar —: hann lætur lítið yfir sér og er óhlutleitinn um menn og málefni. Þó er það víst að hann ber mjögfyrir brjósti, að þjóð vorri megi sem bezt farnast. Og að því að svo mætti verða hefir hann að sínu leyti unnið vel og trúlega.. — Megi starfskrafta hans sem lengst við njóta. Trúlofunarhríngar, Borðbúnaður, Tækifærisgjafir i góðu úrvali. Guðm. Andrésson, gullsmiður Laugaveg 50 . Sími 3769 29 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.