Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Page 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Page 31
Bragþrautir þær'og orðaleikir, sem verið hafa að fornu og nýju einskonar dægradvöl íslenzkra hag- yrðinga, eru ljóst dæmi þeirrar auðlegðar, sem ís- lenzk tunga býr yfir í svo ríkum mæli. Sumir þess- ara orðaleikja eru vel til þess fallnir að reyna brag- fimi þeirra er á hlýða, og birtir Víkingurinn að þessu sinni nokkrar vísur af slíku tagi, eftir Fr. Halldórs- son loftskeytamann. I fyrsta vísnaflokknum er lesendunum ætlað að finna niðurlagsorð hverrar ljóðlínu, en þau eru al- staðar hin sömu í hverri einstarkri vísu, en ávallt þó í breyttri merkingu. í öðrum vísnaflokknum er til þess ætlast að skot- ið sé inn málsháttum, þar sem felldar liafa verið niður línur úr vísunum. þriðji vísnáflokkurinn þarfnast engra skýringa — þar verða menn aðeins að gæta nákvæmni við lesturinn, ef rímið á ekki að raskast. I. Dyggð er oft und dökkri — draumsýn margt, er fyrir — heimskum mest við háskann — er heigullinn sér undan — Sá er oft í sóknum — sem með dyrfsku merkið — hinum lítill hróður — hönd er kyssir þess, sem — Mannlífsþrautin mörg er margur hlaut í erjurn — skyr í grautinn geymir - 1 geði fautinn oft er — II. Sannleiksveginn veldu þér /alt er á lýgi að byggja, en meðalhófið örðugt er og ....................... Til eru hjörtu trú og dvgg traust er annað hrynur, en ......................... trúðu ei henni, vinur. Mörgum var í blindni bent beint á villuleiðir, fátt, sem veginn greiðir. Feigðarvofan föl og bleik foldina örmum vefur, líkt og barn, er sefur. III. Kærleik þinn ef kýstu að sýna í verki þér kjörorð gef ég: „þeim stuðning veittu, er virðast fóðurknappir á vegferð lífsins." Á háskastund þó vinir frá þér flýji (forsæluna þoia ei allir) þú bugast livergi, en bæði í orði og verki þig brynjar djarft þótt finnist ekki á tötrum þínum tomma af tignarmerkjum fyrir störf þín, kærleiksþráin knýr þig samt að verki í kyrrþey. — Lausnirnar verða birtar í næsta blaði. 31 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.