Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1941, Page 1
51ÓmRHHfiBLflDlQ
U 1 K I H 6 U R
ÚTGEFANDI: FARMANNA- OG FIS KIM A N N A S A M B A N D ÍSLANDS
III. árg., 8. tbl. Reyhjavik, ágúst 1941
ÁSGEIR SIGURÐSSON, SKIPSTJÓRI:
/ síutfu máli
Sjómannaskólinn.
Nefnd sú, sem skipuð var af atvinnumálaráð-
herra til að velja skólanum stað og vera í ráð-
um um bygginguna, hefir nú gert sitt til til
þess að flýta því máli. Staðurinn hefir verið
valinn í Rauðarárholtinu. Þar er ágætt land-
rými og því hægt um vik að ákveða lóðina í upp-
hafi nógu stóru með framtíðina fyrir augum,
og skipuleggja svo þarna umhverfi hins fyrir-
hugaða skóla, þannig að bæjarprýði verði að.
Hefir verið talað um í því sambandi, að vel
færi á að þar yrði skemmtigarður fyrir bæjar-
búa og færi vel á að skólinn stæði í slíku um-
hverfi með þeim byggingum, sem nauðsynlegar
eru í sambandi við hann.
Eins og sagt er frá í dagblöðum þeim, er
getið hafa um þetta mál í sambandi við stað-
inn, þá er lóð sú, sem enn er óbyggð þarna í
holtinu um 107 þús. fermetra, og má það eigi
villa mönnum sýn í sambandi við málaleítun
þá, er bæjarstjórn Reykjavíkur hefur borizt um
gefins lóð undir skólann. Eigi er verið að fara
fram á, að öll þessi lóð verði gefin skólanum,
heldur hitt, að umhverfi skólans, þar sem af-
gangs verður frá þörfum hans, verði skipulagt
sem skemmtigarður, svo að fögur bygging, sem
skólabyggingin hlýtur að verða, standi alltaf
sjálfstæð, sem vottur um framsýni og listræna
menningu þessa tímabils, til ánægju öllum, er
fylgst hafa með þessu mjög merka máli.
Á þessu svæði væri tilvalið að Leifsstyttan
stæði — mynd af fyrsta íslenzka farmanninum,
sem vann sér fi'ægð fyrir afrek sín.
Það er víst alveg fullráðið, að bæjarstjórn
gefur lóðina, og fyrir þá viðurkenningu í garð
sjómanna ber að þakka.
Á hæðinni, þar sem skólanum var valinn stað-
ur og sem ýmist er kölluð Rauðarárholt eða
Vatnsgeymishæð, stendur nú viti sá, er vísar
sjófarendum leiðina inn og út af ytri höfninni.
Fer vel á því, að þessi viti verði uppi á skól-
anum, er hann hefur verið reistur. Um leið og
vitinn bendir á leiðina, eins og áður er sagt,
verður hann í sambandi við skólabygginguna
táknmynd þess hlutverks, sem skólanum er
ætlað að leysa fyrir sjómannastéttina og fyrir
þjóðina í heild.
Til þess að festa í minni þeirra, er eigi þekkja
til, einlægan vilja nefndarinnar tii þess að leysa
verk sitt sem fyrst og sem ákveðnast, skal það
tekið fram, að nefndin var öll sammála um
þenna stað að loknum athugunum allra að-
stæðna. Er það nær einsdæmi á voru landi, að
sjö manna nefnd sé sannnála afgreiðslu á mál-
um, sem mikils eru varðandi, og sýnir það bezt,
hve nefndin hefir verið heppin í valinu.
Er nú þess að vænta, að skriður nokkur kom-
ist á þetta mál hið bráðasta og að hinn marg-
þráði skóli rísi af grunni.
Vitamálin.
Um vitamálin er það eitt að segja, að vita-
byggingar þær, sem ákveðið hafði verið að
byggðar yrðu á þessu ári, þ. e. á Grenjanesi við
Þistilfjörð, á Þormóðsskeri og á Arnarstapa
undir Jökli, eru í framkvæmd, en hvort ljós-
kerin fást í þessa vita á þessu ári, eða hvort
leyft verður, að á þeim sé kveikt, ef þeim verður
lokið, er eigi vitað ennþá, en það veltur auð-
vitað á sömu ákvæðunum og síðastliðið ár — á
VÍKINGUR
1