Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1941, Side 4
Víkingurinn var fullbúinn til prentunar, þegar
Reykjavíkurblöðin birtu glefsur úr hinum svonefnda
brezk-íslenzka samningi, í nœsta blaði verður hann
því tekinn til nánari athugunar. Víkingurinn ósk-
ar eftir því, að sjómenn og útvegsmenn í hinum
dreifðu sjávarþorpum landsins, sendi blaðinu álits-
greinar um samninginn og mun það birta þœr í blað-
inu eftir því, sem rúm leyfir.
Bresk-íslenzki vidskiítasamningurinn
Fyrir nokkrum vikum hefir Alþingi íslend-
inga lýst yfir sjálfstæði íslands fyrir umheim-
inum, kosið ríkisstjóra, sem í ágætri ræðu við
embættistökuna bað menn um þegnlega þjón-
ustu og manndóm í uppbyggingu hins unga rík-
is, óskaði því „lífsrúm" undir sólinni og bað
máttarvöldin um styrk og blessun því til
handa.
Sjálfstæðislýsingu Alþingis og ríkisstjóra
hefir eins og vera bar, verið vel tekið af lands-
mönnum. Allir treystu því, að ríkisstjóri fyrst
og fremst og aðrir fulltrúar hins unga ríkis,
legðu manndóm sinn í það að halda fast fram
efnalegum rétti þegnanna.
Fyrsta og stærsta átakið, sem okkur hefir
borið að höndum, virðist hafa mistekizt mjög
hjá ríkisstjórninni og þeim fulltrúum, sem hún
hafði valið til þess vandasama starfs, að semja
um viðskipti Breta og íslendinga.
Margur spyr: ,,Er það þetta, sem koma á?
Eða megum við vænta einhvers annars? Var
samninganefndin ekki sjálfráð gjörða sinna við
samningsborðið ? Ilvernig gat ríkisstjórn hins
unga sjálfstæða íslands lagt blessun sína yfir
jafn auðmýkjandi samninga, þar sem allur rétt-
'ur fiskimannanna til að ráðstafa afla sínum, var
fyrir borð borinn ?“
Hvernig gat samninganefndin haft svo lítið
skap og ríkisstjórnin lagt blessun sína yfir þá
miðaldaaðferð, að gefa útlendingum einkaleyfi
(til eins árs) á öllum fiski, sem veiðist á beztu
fiskimiðum landsins og fá ekki svo mikið sem
tryggingu fyrir því, að næg skip séu fyrir hendi
til þess afsetja aflann?
Hvernig ætlar samningsnefndin og ríkis-
stjórnin að réttlæta gjörðir sínar fyrir alþjóð,
eftir að hafa samþykkt einokunarhlekki á fiski-
mennina og reyndar alla þjóðina, lækkað að mun
í verði umsamdar afurðir hennar, án þess að
spyrja stærstu og ríkustu þjóð heimsins, sem
hefir þar að auki tekizt á hendur vernd á land-
inu og boðið okkur beztu viðskiptasamninga,
hvað hún hafi upp á að bjóða okkur til hags-
bóta?
Heldur samningsnefndin og ríkisstjórnin, að
nokkur fiskimaður eða útvegsmaður trúi því,
að það séu góðir samningar fyrir þá, að þurfa
að hrökklast með línuveiðarana og smærri skip
til Norður- og Austurlandsins, ef þeir kaupa
fisk til útflutnings, þar sem vitað er, að þar
fæst enginn fiskur langan tíma ársins, og nú,
þegar þar er fyrir meira en nóg af Færeying-
um til fiskikaupa af þei mbátum, sem stunda
sjó?
Halda þeir sömu aðilar, að það sé í þágu tog-
araflotans, að brezka herstjórnin hefir lokað
beztu fiskimiðunum fyrir Vestur- og Austur-
landi? Og ef togara, sem fiskar fyrir Vestur-
landi, vantar nokkur tonn á fullfermi, er bann-
að að fá bátafisk, þótt hann fengist í Faxabugt
eða fyrir Vesturlandi?
Ileldur samninganefndin og ríkisstjórnin, að
nokkur maður trúi því, að það séu góðir samn-
ingar fyrir fiskimenn og útvegsmenn, að lækka
fiskverðið að miklum mun?
Ennfremur að lækka frysta fiskinn allveru-
lega frá því, sem frystihúsaeigendur töldu sig
þurfa að fá fyrir hann (það er ekki rétt, sem
einn ráðherrann sagði, að frystihúsaeigendur
hafi fengið kröfu sína uppfyllta) ?
Að selja 15 þúsund tonn af síldarlýsinu og
láta reka á reiðanum um síldarmjölið? Það út-
gengilegasta hefir verið selt án nokkurra telj-
andi skuldbindinga.
Er það þegnlegt og sýnir það manndóm að
skrifa undir samninga án þess að treyggja, að
fiskiflotinn fengi nægileg kol til fiskveiðanna
með sambærilegu verði við lækkun fiskverðs-
ins?
Halda þessir aðilar í fullri alvöru (eftir skrif-
um þeirra að dæma), að þeir séu teknir alvar-
lega í réttlætingum sínum og lofi um góða samn-
inga, þegar þar við bætist, að öll salan fer fram
í pundum? Þannig, ef krónan er hækkuð, sem
allar líkur benda til að verði að gera, þá lækk-
ar þetta lága fiskverð tilsvarandi. Kol, olía og
salt hækkar í svipuðu hlutfalli við hækkun
Krónunnar, ef eitthvað af þessu fæst flutt til
VÍKINGUR
4