Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1941, Blaðsíða 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1941, Blaðsíða 7
Jóns Siðurðssonar forseta EFTIR HAUK H ELGASON bankabókara Ekki leikur það á tveim tungum, að Jón Sig- urðsson forseti, mun vera mest dáður þeirra, sem skapað hafa sögu hinnar íslenzku þjó?ar. Ber margt til þess, en einkum sá þáttur, sem hann átti í frelsis- og sjálfstæðisbaráttu þjóð- arinnar. Þótt fjölmargir aðrir fslendingar hafi unnið vel í þeirri baráttu, þá ber Jón Sigurðs- son af. Um engan annan einstakan mann er með sanni hægt að segja, að hann hafi sett markið, sem unnið skyldi að, fundið vopnin, sem barizt skyldi með og beitt þeim vopnum á happa- drýgri hátt, en hann gerði í áratugi. í fyrstu vekur það undrun, þegar maður les æfisögu Jóns Sigurðssonar, hversu fjölhæfur maðurinn var. Hann var í senn markviss stjórn- málamaður, vandaður vísindamaður og hafði augun opin fyrir vandamálum þjóðarinnar á sviði atvinnuveganna. En þótt þetta þrennt kunni í fyrstu að þykja óskylt, þá er það ekki svo. Vísindastarfsemi hans var samtengd stjórnmálabaráttu hans. Því við rannsókn á sögu þjóðarinnar fann hann rökin fyrir sjálf- stæðiskröfum hennar. Og afskipti hans af at- vinnulegum vandamálum byggðust fyrst og fremst á því, að honum var vel ljóst, að harð- fylgnari yrðu landarnir í stjórnmálabaráttunni, ef þeir ættu meir en rétt til hnífs og skeiðar. Bjargræðisvegir þjóðarinnar yrðu að standa föstum fótum. Jón Sigurðsson vann því sleitulaust að því að fræða landsmenn sína um nýjustu framleiðslu- hætti, bæði til sjávar og sveita. M. a. ritaði hann tvo bæklinga með þetta fyrir augum. — Fyrri bæklingurinn kom út árið 1859 og hét: „Lítil fiskibók með uppdráttum og útskýringum handa fiskimönnum á íslandi", en hinn síðar- taldi kom út árið 1861 og hét: „Lítil varnings- bók handa bændum og búmönnum á íslandi“. Fiskibókin verður gerð hér að umtalsefni. — Reyndar er mjög margt, sem í henni stendur, nú orðið úrelt, þar sem fiskveiðatækni hefur fleygt svo fram á þeim rúmum 80 árum frá því að hún var skrifuð .En Fiskibókin er fyrir marga hluti svo merk bók, að rétt má telja, að íslenzkum sjómönnum gefist kostur á að kynn- ast innihaldi hennar, en bókin sjálf er fyrir löngu ófáanleg. Fiskibókin er eins og getið er um á titilblaði bókarinnar „Samin eftir fiskiveiðabókum W. Heins“, en Heins þessi var danskur maður, er lét fiskveiðamál mjög til sín taka. Ritaði hann ýmsa bæklinga um fiskveiðar og birti á prenti á ár- unum 1853—58. Það rit, sem helzt mun hafa verið fyrirmynd að Fiskibókinni var „Kort Fremstilling af de forskellige Sorter Fiske- redskaber“, og kom út árið 1858. Jón Sigurðs- son fór þó ekki í einu og öllu eftir Heins, held- ur aflaði sér upplýsinga frá öðrum fróðum mönnum. T. d. skrifaðist hann á við tvo norska fiskveiðafrömuði, er hétu Hetting og Löberg, og fékk frá þeim skýrslur og upplýsingar um tilhögun fiskveiða í Noregi. Fiskibókin, sem er 42 blaðsíður að stærð og var prentuð á kostnað dómsmálastjórnarinnar og útbýtt um landið, hefst á alllöngum formála, en skiptist svo í 3 þætti, auk eftirmála. Fyrsti þátturinn er um: „Veiðarfærin og meðferð á þeim: um net og netalögn, um aungla og haldfæri, lóðir og dufl, um sigðhnífinn, til að skera með fiskinn“. Annar þátturinn fjallar um: „Vöruverkun: um lifrina og lýsisbræðslu, um sundmaga og húsblas“. og þriðji þátturinn er um: „Hirðing á úrkasti úr sjófángi: um að fæða hænsn, endur og svín á sjófángií um að gjöra áburð úr sjófángi til jarðrælrt- ar“. 93 'í5:i msa : nr :rvÁ r.a 'áo 5ö inu VlKINGUR 7

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.