Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1941, Page 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1941, Page 13
HALLGRÍMUR JÓNSSON : Um fjárhag Eimskipafélags Islands Það var þörf hugvekja, sem hr. Brynjólfur Stefánsson forstjóri skrifaði á dögunum í Morgunblaðið, um fjárhag Eimskipaféiagsins, og hefði þó mátt meira segja um nauðsyn þess, að félagið yki nú sjóði sína. Að sjálfsögðu gerir almenningur sér ekki grein fyrir því, hve háan tekjuafgang áhættu- fyrirtæki verða nú að reikna sér, til þess að einhver von sé um að allt haldist í horfinu eftir stríðið. En stjórn Eimskipafélagsins hefir séð tvenna tímana um fjárhag félagsins og hugsar sér vafalaust að treysta nú fjárhag þess eftir mætti. Þær aðfinnslur, sem hún hefir orðið fyrir síð- an á aðalfundi, að ársreikningurinn frá í fyrra var lagður fram, eru því fyllilega óverðskuld- aðar. Það væri þvert á móti óafsakanlegt, ef félagsstjórnin væri ekki vel á verði í þessum efnum. En hvernig stendur á því, að einkum for- göngumenn samvinnufélaganna eru alltaf að hnjóða í Eimskipafélagið, ef það hagnast á starfsemi sinni og getur lagt í sjóði? Óvíða eru þó taldir eins margir sjóðir og í samvinnufé- lögunum. Þeir eru taldir samvizkusamlega fram árlega, og félögunum talið til gildis, að þeir séu sem ríflegastir. Er það og laukrétt. Þeir eru trygging samvinnumanna fyrir góðum viðskift- um og viðhaldi þeirra merku stofnana. Eimskipafélagið er, meira en nokkurt annað fyrirtæki, samvinnufélag landsmanna. Og til þess, að það geti innt af hendi sitt hlutverk, verður það að hafa fjársjóð. Þegar þess er gætt, hvernig Eimskipafélagið er til orðið og hvern- ig það hefir verið rekið, þá er það ekki af um- hyggju fyrir öllum almenningi, ef það væri hindrað í að hagnast nokkuð á starfsemi sinni og færa út kvíarnar. Þegar minnst er á fjárhag Eimskipafélagsins og mátt þess til að inna af hendi það hlutverk, sem því er ætlað, ber á það að líta, að meiri hluti skipanna er kominn langt yfir tvítugt. Þau verða því alls ekki samkeppnisfær eftir stríð, þegar ný skip koma á markaðinn. Þó nú að lánið fylgi félaginu hér eftir eins og hingað til, og það haldi skipunum, þá kemst það ekki hjá því að endurnýja þau eins fljótt og nokkur kostur er á. En hversu fljótt eyðast þá ekki hinar smáu krónur, sem Eimskipafélagið er nú að safna? Reynslan frá eftirstríðsárunum 1919 —1921 er nærtækt til dæmis um það, sem koma mun í því efni. Starfsemi Eimskipafélagsins er enn ekki nema vísir að því, sem verða þarf í framtíðinni. Reynslan er nú að kenna þjóðinni hve mikil nauðsyn henni er á nægum kosti farskipa. Og þó eitthvað megi ef til vill til tína, sem miður hefir farið að undanförnu um stjórn Eimskipa- félagsins, þá munu þeir fáir, sem ekki telja sjálfsagt, að það hafi forgöngu í þessum málum eftirleiðis sem hingað til. En það gefur auga leið, að skammsýni sú og sýtingssemi, sem snúið hefir að Eimskipafelag- inu að undanförnu, og verið hefir stjórn þess fjötur um fót, verður að hverfa. Til þess að Is- lendingar nái undirtökum eða réttara sagt öll- um tökum á siglingamálum sínum, þarf mikið fé. Þær ca. 3 milljónir, sem Eimskipafélagið hagnaðist á starfsemi sinni síðastliðið ár, hrökkva þar næsta skammt, jafnvel 3 sinnum 3 milljónir er alltof lítið. — „Nú stórfé, það næg- ir ei minna“. Þau orð skáldsins eiga einmitt við í þessu efni. I stað nöldursemi um auðsöfnun Eimskipafé- lagsins á undanförnum árum, hefði verið meiri þörf á að ýta undir stjórn þess til aukinna fram- kvæmda um að auka skipastólinn. Eða munu ekki margir hugsa svo nú. Ekki svo að skilja, að ég sé að ásaka félagsstjórnina í því efni, hún hefir áreiðanlega gildar ástæður fyrir sín- um ráðstöfunum. Það er vitað mál, að hinar svo- nefndu „vinsældir" Eimskipafélagsins eru að allmiklu leyti af því, að það hefir oft verið næsta lítill kaupmennskubragur á starfsemi þess, og eftirtekjur því minni en efni stóðu til. Aukasporslur vegna viðskiptavinanna hafa off- lega kostað félagið mikið fé. Samtímis hefir fé- lagið fengið að heyra, að það hefði ónógan skipakost. I öllu þessu kennir nokkurs ósam- ræmis, og mest nú, þegar félagsstjórnin vill tryggja félagið gegn margauknum áhættum, sem fyrir hendi eru. Það hefir verið talað um að afnema að veru- legu leyti reksturshagnað Eimskipafélagsins. En með því er torvelduð viðleitni þess að verða samkeppisfært í framtíðinni. Þeir, sem gera kröfu til þess, koma ekki auga á, að varasjóðir félagsins eru vissulega einhverjir þörfustu sparisjóði landsmanna. Þeir eru trygging fyrir árlegum milljónagróða fyrir þessa þjóð í fram- tíðinni. Það væri því hið mesta glapræði að hindra nú vöxt þeirra. H. J. VÍKINGUR 13

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.