Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1941, Blaðsíða 15
öðru nýju, eins og sýnt er á mynd II. Þá eiga
Bretar mikinn fjölda skipa í pöntun hjá Banda-
ríkjaverksmiðjum. Aðeins ein skipasmiðja
(Todd Shipbuilding Co), hefir tekið að sér að
smíða 60 stór flutningaskip fyrir Breta. Verða
það mjög einföld skip og íburðarlaus. — Með
einföldum vélum og öll rafsoðin. Til flýtisauka
eru stórir skipshlutar smíðaðir hver á sínum
stað og síðan soðnir saman, sjá III. og IV.
mynd.
Svo er sagt, að Bretar reikni með 5.000.000
smálesta tapi á þessu ári, en vonast til að geta
bætt sér það upp að miklum hluta með aðstoð
Bandaríkjanna.
Þannig er í nokkrum dráttum aðstaðan í or-
ustunni um Atlantshafið, og stjórnmálamenn og
herfræðingar telja, að höfuðátökin séu einmitt
þar.
Svo mjög erum við Islendingar nú blandaðir
inn í þessa styrjöld, að segja má, að hver sig-
ur Breta sé okkar sigur. — Mundi ýmsu hér
aftur fara, ef við biðum lægra hlut í viðleitni
okkar í því að sigla á eigin fleytum um höfin.
H. J.
Lelðbeinirigar um meðferð
tundurdufla
í tilefni af ýmsum ummælum í blaðagreinum
og víðar varðandi skaðsemi tundurdufla, sem
sökkt er með riffilskotum, hefir tundurdufla-
sérfræðingur brezka sjóhersins hér, góðfúslega
látið Skipaútgerðinni í té eftirfarandi upplýs-
ingar, og leyft að þær væru birtar í blöðum:
Brezk tundurdufl, sem losna sjálfkrafa frá
festum sínum, eru undantekningarlaust hættu-
laus og geta ekki sprungið, nema eitthvað fylgi
af festartaug þeirri, sem duflinu var fest með,
og sú taug verði fyrir átaki svo að hún streng-
ist. Ástæðan til þess, að tundurdufl hafa sprung-
ið í lendingu hér við land er sú, að festartaugin
hefir festst á steinum, en brimið velt duflinu
við og þannig reynt á festartaugina, og hefir
það orsakað sprenginguna. Það er auðsætt, að
ómögulega má nota festartaugina sem dráttar-
taug og forðast verður einnig að koma við
nokkra aðra taug, sem á duflinu er eða því kann
að fylgja. Sé hinsvegar nauðsynlegt að draga
duflið til, má festa di'áttartaug í þar til gei’ða
járnhringi á sjálfu duflinu, og verða þá drátt-
artaugarnar að vei'a mimxst 2§0 yards langar,
og skal áhei'zla lögð á það, að því aðeins má
draga duflin, að taugin sé ekki styttri, og að
reyndir meixix séu þar að vei'ki. Það skal tekið
fram, að ávallt verður að vai’ast að koma við
horn duflsins.
Tundurdufl, sem sökkt er í rúmsjó, er oi'ðið
með öllu hættulaust eftir vikutíma, og þó það,
að þeirn tínxa liðnum komi í botnvörpu eða net,
mun það ekki springa.
Sikpaútgerð í'íkisins
14. ágúst 1941.
Pálmi Loftsson.
VÍKINGUB
15