Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1941, Síða 21

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1941, Síða 21
ferðum að segja. Um nokkurt skeið sigldi hann á skipum, sem fóru eingöngu milli Englands og Frakklands meðan ófriðurinn stóð sem hæzt, og mátti nær einstakt heita, að ekkert skyldi koma fyrir hann eða skip hans á þessu tíma- bili, því að þær ferðir voru þá taldar hættu- legastar allra. Sigldi hann á útlendum skipum til ársins 1922, en kom þá hingað heim og fór á Stýrimannaskólann það sama haust. Lauk hann farmannaprófi vorið 1924 og fór þá stýri- maður með Rafni Sigurðssyni á e.s. „Nonna“ frá Akureyri. Sigldi hann á því skipi til hausts- ins 1926, en fór þá til Noregs og var þar skip- stjóri á e.s. „Anders“ frá Akureyri, sem gert var út þar þann vetur. Vorið 1927 kom hann heim með skipið og réðist þá skipstjóri á „Nonna“ og var á honum bæði á síldveiðum og í siglingum fram á vetur 1928, er skipið hætti ferðum. Sumarið 1929 réðist hann 1. stýrimað- ur með Rafni Sigurðssyni á e.s. „Vestra“, sem þá hafði verið keyptur til ísafjarðar, og var á skipinu þar til það hætti ferðum árið 1932. Gerðist hann þá meðstofnandi að Eimskipafé- lagi Reykjavíkur og varð 1. stýrimaður á hinu nýkeypta skipi félagsins, „Heklu“, en tók við skipstjórn á því þegar félagið keypti annað skip, e.s. „Kötlu“, árið 1934, og stýrði hann „IIeklu“ síðan til dauðadags. Með Einari er horfinn einn þeirra manna, sem ég hefði sízt viljað sjá á bak, og veit ég að þar tala ég fyrir munn margra annarra, bæði skyldra og óskyldra. Ber þar margt til, því að hann hafði í óvenjuríkum mæli til að bera þá hluti, sem gera mann eftirsóknarverð- an sem félaga og vin. Hann var glæsilegur ð ytra útliti, mikill vexti, hraustlegur og drengi- legur, og var sem ávallt stafaði frá honum hið niikla fjör og léttleiki, sem í huga hans bjó. Hann kunni allra manna bezt að skemmta bæði sér og öðrum, var greindur vel, ör í lund og hispurslaus í tali og framkomu. Kappsfullur var hann og fastheldinn við skoðanir sínar, því skapið var mikið, en jafnframt var hann hrein- lyndur og góðgjarn, svo að mér þykir ólíklegt, nð hann hafi nokkra óvini eignazt. Vinir hans voru aftur fjölmargir, og því meiri, sem þeir þekktu hann betur, og þóttist sá jafnan bezt hafa, sem næstur honum stóð. Sem skipstjóri var Einar ágætum hæfileikum búinn, ötull og áræðinn, en jafnframt gætinn vel, svo að aldrei hlekktist honum á í öll þau ár, sem hann stýrði skipi. Skip hans, „Hekla“, var ekki nema miðlungi gott í sjó að leggja, og hlaut hann oft að sigla því mikið hlöðnu í lang- ferðir um hávetur, en þá reynir ekki hvað niinnst á þrek manna og skipstjórnarhæfileika. Varð honum og jafnan gott til manna, því að 21 hann var mÖnnurn sínum hvorttveggja í senn, öruggur leiðtogi og hollur ráðunautur. Dauða hans bar að með sviplegum hætti, en hann tók honum eins og vera ber, og gleymdi ekki að at- huga um hagi manna sinna áður en hann gerði tilraun til að bjarga lífinu, en til þess fekk hann lítið ráðrúm. Einar var giftur ágætri konu, Guðrúnu, dótt- ur hins mikla athafnamanns, Einars Einars- sonar í Garðhúsum í Grindavík, og lifir hún mann sinn ásamt einkadóttur þeirra, Guðbjörgu Erlu, 8 ára gamalli. Voru þau hjónin samhent um glaðværð og gestrisni á hinu snotra heimili þeirra á Reynimel 44, enda hvort um sig rómuð fyrir hjálpsemi og örlæti við alla, sem til þeirra leituðu og hjálpar þurftu með. Hafa þær mæðg- ur goldið mikið afhroð í missi slíks heimilis- föður og Einar var. Með Einari á sjómannastétt okkar á bak að sjá einum af beztu fulltrúum sínum, og vinum sínum er hann harmdauði, meir en flestir aðrir. Friðrik V. Ólafsson. Verð á landbúnaðarvörum í Noregi vikuna 4.- -11. ágúst 1941. Nautakjöt 1. fl. kr. 2,40 pr. kg. — 2. fl. — 2,20 — — — 3. fl. — 2,00 — — Kvígukjöt 1. 11. kr. 2,30 pr. kg. — 2. fl. — 2,00 — — — 3. fl. — 1,80 — — Kýrkjöt 1. fl. kr. 2,10 pr. kg. — 2. fl. — 2,00 — — — 3. fl. — 1,90 — — — 4. fl. — 1,80 — — Kálfakjöt 1. fl. kr. 2,35 pr; kg. — 2. fl. — 2,22 — — — 3. fl. — 2,05 — — Kindakjöt 1. 11. kr. 2,30 pr. kg. — 2. fl. — 2,15 — — — 3. fl. — 1,85 — — Svínakjöt 1. fl. kr. 2,65 pr. • kg. ð á garðávöxtum var á sama tíma í Oslo: Blómkál 65 au. pr. kg. Gulrófur 45 — — — Jarðepli (venjuleg) 20 Rabarbari 20 Sykurertur 1,10 Tómatar 1,50 Jarðailber 2,00 Bláber til útfl. og rifsb. 85 þetta er verðið, sem framleiðslan fær, — allt miðað við 1. fl. vöru. Norslca verðlagsncfndin fyrirbyggir allt okur og ákveður hámark útsöluverðs í búðum. Á kjöt er það mest 30% hærra, á jarðeplum og berj- um ekki meira en 40%. En á sumar, vandgeymdar káltegundir, svo scm blómkál, er leyfilegt að leggja á allt að 90% í smásölu. Búðarverð á kartöflum í Noregi er nú 28 au. pr. kg. VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.