Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1941, Blaðsíða 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1941, Blaðsíða 25
til samningagerðar, hversu dugandi maður sem hann kann að vera, og mætur þegn heima fyrir. Islendingum myndi ekki hafa talið sér það vænlegt að hafa í samningsnefndinni, íslenzkan útgerðarmann, sem hefði viljað bægja enskum skipum frá því að geta fengið hér þurftir sínar. Manni skilst, að það sé gegn slíkum yfirgangs- skap ágengra en dugandi manna, sem Bretar og lýðræðisþjóðirnar berjast nú fyrir lífi sínu. Sem betur fer, þá eru í Bretlandi margir mæt- ir menn, sem við eigum ekkert nema gott upp að unna, hinum er aðeins hafa hugsað um sinn eigin hag, erum við ekki skuldbundnir í neinu. Einkennileg er sú vandlæting, sem gripið hef- ir sum stjórnarblöðin út af þessari og þvílikri gagnrýni, meðan önnur úthverfa sig í vonzku yf- ir að atvinnumálaráðherra hefur reynt að bjarga við síldarsölumálunum, með því að hrifsa þau úr höndum misheppnaðra manna. Manna á meðal er nú rætt um, hvað stjórnin er ráðalaus í dýrtíðarmálunum. Viðskiptamála- ráðherrann hefur að vísu komið fram með ýms- ar tillögur, en þær beinast aðallega gegn erlenda varningnum og aðflutningsgjöldunum, sem niönnum finnst þó vorkunn í að hafi hækkað frá því, sem áður var, en minna gegn hinni óbæri- legu verðhækkun á innlendu vörunum. Ef allt væri nú látið afskiptalaust, myndu húseigendur eiga einna bezt með að græða á við- skiptum, en við því hefir verið séð með vald- boði, en er nú ekki kominn tími til að aðrir verði látnir sýna þegnskap sinn. Það sem f ólkið óskar að gert sé, er þetta meðal annars: 1. að útsöluverð mjólkur verði strax lækkað niður í 60 aura pr. líter, og að hinir fjár- freku stjórnskipuðu milliliðir verði iagðir niður og útsalan boðin frjáls gegn ákveðnu lágmarksverði, 40 aurum pr. líter til bænda í nærsveitum, þar sem dýrara er að afla heyja, en tiltölulega lægra vei’ði til þeirra sem fjær búa við betri ræktunarskilyrði. 2. að útsöluverð á kjöti á innanlandsmarkaðn- um, verði ákveðið sama og fyrir stríð, að viðbættri dýrtíðaruppbót. Að bændum, sem missa fé sitt úr pest eða af öðrum ástæð- um, verði bætt upp með sama verði. 3. að útsöluverð á smjöri verði ákveðið kr. 6,00 með verðlags uppbót úr ríkissjóði upp í kr. 8,00 kg., og smjörið skamtað. 4. að tekin verði upp skömmtun á kartöflum og hámarksverð á þeim 40 aurar pr. kg. til framleiðenda. 5. að gerðar verði ráðstafanir til þess að al- menningur fái keyptan fisk til matar fyrir sama verð og hann er seldur hér í höfn til útflutnings. Það verður ekki hægt að gera alla ánægða, en það ætti að vera hægt að sýna öllum þorra landsmanna réttlæti. Mönnum hefir oft þótt forsætisráðherranum okkar mælazt vel í ýmsum tækifærisráðum hér fyrir hernámið, og hann þá vera all glöggskygn á ýmsa ágalla í fari þjóðar sinnar, þess vegna er það því óskiljanlegra, að mestu vandræðin nú, virðast stafa frá aðgerðum eða aðgerðarleysi, dóms- og búnaðarmálaráðuneytisins. Einn af áheyrendunum. Erlendar fréttir. Framh. af hls. 17. 24./7. — Nokkrir Danir, búsett- ir í Reykjavfk, stofna sjóð tal styrktar dönskum börnum, sem illa verða leikin af völdum ófrið- arins. * Itaiir tilkynna, að þeir hafi niisst um % milj. manna, síðan stríðið hófst. * 24./7. — Japanskt sjólið sett á land í tveim flotabækistöðvum og flugvélabækistöðvum í Suður- Indó-Kína. * 2G./7. — Stjórnir Bretlands og Bandaríkjanna tilkynna, að inn- eignir Japana í löndum þeirra lia.fi verið lrystar, þ. e. bannað er að nota þær í viðskiptum, nema með leyfi viðlcomandi stjórna. * 28. /7. — Utanríkismálaráð- herra Finna, Trikkala, tilkynnir sendiherra Breta í Helsingfors, að þeir geti ómögulega haldið uppi stjórnmáí'asambandi við Breta, þar eð Finnar berjist við hlið Jtjóðvcrja. * 29. /7. — Yfirmaður þýzka setu- liðsins í Serbíu, von Schröder hershöfðingi, myrtur í Beigrad. * 30./7. — Brezkar og rússnesk- ar flugvélar gera loftárás á borg i Norður-Noregi, norður við Ishai. * Rússar og Pólverjar gera með sér bandalag. Sikorsky, forsætis- ráðherra undirskrifaði fyrir hönd Pólverja, en Maisky sendiherra fyrir hönd Rússa. * Amerískur tundurspillir neyðist í sjálfsvarnarskyni til að varpa þrem djúpsprengjum í Atlants- liafi. Var hann staddur í suður frá Grænlandi. — Um líkt leyti tilkynntu þjóðverjar, að þýzkur kafbátur ynni nýja sigra á At- lantshafi. 25 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.