Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1941, Síða 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1941, Síða 27
Þegnskyldu vinnan og Halidór Kiljan Laxness Þjóðin er nú almennt að vakna til meðvitund- ar um það, að til þess að nýta og prýða landið sem bezt, verði ákjósanlegast að koma á al- mennri þegnskylduvinnu meðal unga fólksins í landinu. Ekkert starf getur verið skemmtilegra, og ekkert takmark göfugra fyrir æskumennina, er nú hafa allt lífið fram undan, en að fórna fóst- urmoldinni einhverri af tómstundum sínum til þess að búa í haginn fyrir sig og sína í framtíð- inni. Þegar maður hugsar til hinna ónotuðu tæki- færa, til þess sem látið hefir verið ógert, síðan þegnskylduvinnan kom fyrst til umræðu á Al- þingi, getur maður ekki annað en fundið til innilegrar hryggðar yfir mannlegum takmörk- unum og skammsýni. Og ennþá geta verið til einstaklingar, sem gleypa hvert tækifæri til að spyrna við allri þegnlegri viðleitni. Þeir eru svo þýlyndir, að þeir draga dár að hverju fórnfúsu starfi og á- líta alla vinnu þrælslega þjónkun við einhvern óvandaðan húsbónda. f 1. hefti Tímaritsins Máls og menningar þ. á., er greinarkorn eftir Halldór Kiljan Laxness rithöfund, þar sem hann þjónar lund sinni með því að reyna að spilla fyrir þegnskylduvinnu- hugmyndinni: „ sem hann telur ekki hafa neinn skynsamlegan tilgang, nema er að því snertir eina stétt, og það er hátekjufólk. Það fólk, sem ekki á afkomu sína undir sölu vinnuafls“. IJm þetta fólk er honum ósárt. Það er eins og hann álíti að hátekna sé léttast að afla án starfs eða hugsunar, og það verði einhver sérstök hag- sýni að taka atvinnurekendurna úr umferð, „og láta þá moka skít fyrir ekki neitt“. í augum Kiljans verður öll vinna „skítmokst- ur“, hvort sem unnið er fyrir hinu daglega brauði eða til að klæða og prýða landið — og starfandi menn ekkert annað en skítmokarar. Hann hefir enga löngun til þess að velta fyr- ir sér svo einföldum sannleika, að þótt mönn- um veitti ekki af því, sem þeir geta fengið fyr- ir vinnu sína, þá hefir til þessa ekki verið nærri því hægt að selja alla vinnu sína fyrir texta, sízt hefir það tekizt fyrir óharðnaða unglinga. Því hefir sú raunin orðið á, að þeir ráða yfir óteljandi tómstundum, sem ekki er hægt að 27 \. koma í peninga, meðan þeir á sama tíma auka foreldrum sínum útgjöld. Þeim stundum verð- ur aldrei betur varið, en með því að iðka íþrótt- ir, læra ástundun og reglusemi, og vinna í sam- félagi með öðrum jafnöldrum sínum, að því að bæta og fegra átthagana. Það eru auðvitað til margir menn, sem eru sístarfandi og aldrei unna sér neinnar hvíldar, og aðrir, sem hafa mikilsverðum störfum að gegna fyrir þjóðfélagið. Þeir gætu með sanni sagt, að þeir þurfi ekki á þegnskylduvinnu að halda. En það er ekki frá þessum mönnum, sem mótmælin komá núna. Þau koma frá liðleys- ingjunum. Það eru alltaf til letingjar og iðju- leysingjar, sem lifa á annarra sveita. Slíkir menn þurfa betrunar við. Ennþá er til, jafnvel hér á landi, ískyggilegur fjöldi, sem telja sig ekki vera til annars fallnir en að sitja á Borg- inni, aka í bíl í Kömbum eða hanga á Laugar- vatni við að hripa niður á einhver blöð, bergmál af sínum óvöndu og ótugtarlegu kroppkennd- um. Það er von, að þeir geti ekki liðið, að upp vaxi með þjóðinni mannborlegir menn, sem sjá ekki eftir, að leggja náunganum liðsinni sitt, og sem ekki vilja vamm sitt vita í neinu. Það er hægt að þekkja manndóm manna á því, hversu vel þeir bregða við öðrum til styrkt- ar. Þeir verða undantekningarlaust nýtir menn og góðir synir ættjarðarinnar, sem skjótir eru að leggja eitthvað á sig landi og lýð til heilla. Hinir, sem gagnstætt hugsa og breyta, geta varla góðir menn talizt. — Þeir hljóta ætíð að verða samtíð sinni til skapraunar. Halldór Kiljan Laxness hefir fundið það köll- un sína, að glepja menn frá því að eyða nokkr- um tómstundum til þes að inna af hendi þegn- skyldustörf fyrir sveit sína og samfélag. Ilann, sem aðhyllist, að rétt sé að koma fram hug- sjónamálum með ofbeldi, ef ekki verkast öðru- vísi, getur reitt sig á það, að til eru þeir ís- lendingar, sem gætu að því leyti farið að orð- um hans, að þeir myndu, ef þörf gerðist. ekki hika við að beita nægilega miklu handafli, til þess að einstaka orðhákum verði ekki leyft að standa í vegi fyrir stórfeldum umbóta- og þjóð- þrifamálum. Hy. VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.