Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1942, Blaðsíða 6
v/b Pálmi frá Siglufirði
Sunnudaginn 28. sept. f. á., lagði vélbátur-
inn „Pálmi“ frá Siglufirði af stað í róður. —
Veður var hið ákjósanlegasta, aðeins örlítið
suðvestan kul, er báturinn hélt út fjörðinn.
Næstu nótt og daginn eftir var einnig bezta
veður og litlir, opnir bátar lögðu lóðir sínar
og drógu, án þess að nokkuð í skærist. Sigl-
firðingar urðu því mjög undrandi, er ,,Pálmi“
kom eigi að landi á þeim tíma, sem vænta
hefði mátt. Hugðu menn í fyrstu, að vélar-
bilun hefði orðið bátnum að farartálma, en
síðar kom í Ijós, að svo mun ekki hafa
verið, því að lík eins skipverjans fannst í
björgunarbelti 2—3 sjómílur utan við Stráka.
Þótti þá sýnt um afdrif bátsins, en hvernig
hann hafði farizt var mönnum óráðin gáta og
svo er enn. Með ,,Pálma“ fórust þessir menn.
Júlíus Sigurðsson.
*
I
Júlíus Einarsson,
VÍKINGUR
Kristján Hallgrímsson.