Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1942, Side 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1942, Side 15
með heitinu „hermenn þjóðarinnar", og finn- ist þeir oft fremur mæta þeim móttökum, að þeir sjeu sekir menn. Þó einskorðun hugarfars óteljancli mismun- andi einstaklinga sje ókleif, getur margvíslegt og langvarandi misrjetti leitt þá að sama átaki. Lengi hefur ólgað óánægja meðal sjómanna allra stjórnmálaskoðana, og þeirra er til þeirra teljast, yfir vinnubrögðum þeirra sem í landi stjórna þjóðmálunum. Sú ólga hefur nýlega komið glöggt í ljós, með því að sjómenn hafa allvíða um land lagt sjálfir beint út í stjórn- málabaráttuna. Fyrsta aldan var ekki stór, en þegar ein báran rís, er önnur vís. Ef dugandi mönnum sjávarútvegs og sjó- mennsku meira en aðeins skyldist hinn gamli sannleikur vísunnar: Annað hvort átt þú að stíga eða dýpra niður síga. Herra eða hjú þú vera, hamar eða steðji skalt. Sigra, eða bljúgur bera byrði lífsins — það er alt. Er ekki ólíklegt að þjóðlífið hefði gott af því að veita nýjum og heilbrigðum straumum yfir sendna mörk íslenskra stjórnmála, sem rvnni utan við hina þröngu og gruggugu árvegi flokkslegra sjerhagsmuna. Sje raunverulegur samstarfsvilji fyrir hendi og smávægilegur kritur lagður á hilluna, getur íslensk sjávarútgerð og sjómennska skapað sjer glæsta og verðuga framtíð. Fréttir úr verstöðvum Frá Stykkishólmi og Grundarfirði hafa gengið í sumar 6 bátar með dragnót og 10 trillubátar, aðallega í haust og eru fleiri að búa sig út um þessar mundir. Afli var sæmi- legur á dragnótinni, en misjafn á trillubátana og heldur tregt, enda ekki stundað af miklu kappi ennþá, mest vegna vöntunar á mann- skap, meðan á sláturstíð stóð. Fisktökuskipið ,,Spica“ kom hér í september s.l. og var hér í 12 daga, en hittist svo illa á, að þá voru ógæftir og fékk það aðeins um 50 tonn. Sömu- leiðis kom fisktökuskipið ,,Amstelstoom“, og fór það á sömu leið, lítill afli og ógæftir og varð að fara eftir 10 daga bið og fékk rúm 60 tonn. Afkoma fólks er yfirleitt góð. Mikil vinna oftast nær. Lúða hefir lítið veiðst í sumar og 15 haust, enda ekki mikið stundað, og veldur því nokkuð, að síld er svo dýr, að mönnum ógnar að brytja hana niður. Hún kostar 1 kr. kg. Mönnum gengur illa að átta sig á því verði, þegar síldin kostar kr. 12,00 málið allt sumarið. Sjómenn vona fastlega eftir að hing- að komi fisktökuskip, þegar farið er að róa með lóðir fyrir alvöru og vonandi að afli glæðist. Nú um þessar mundir er fiskurinn keyptur á 35 aura pr. kg., er flakaður og pækilsalt- aður í tunnur og gefur þetta talsverða vinnu í landi, en menn eru hræddir um að það hald- ist ekki lengi. Hér er verið að byggja stórt og mikið hraðfrystihús, eign Sig. Ágústssonar kaupmanns í Stykkishólmi. Auk þess er starf- andi hraðfrystihús Kaupfélags Stykkishólms og hefir það verið starfandi allt árið og tekið á móti fiski til hraðfrvstingar nema mánaðar- tíma, er sláturstíð stóð yfir í haust. Ó. V. 'k Herra ritstjóri! í 10. tbl. Sjómannablaðsins Víkingur, eru fréttir úr verstöðvupum norðanlands. — Mér þykir nokkurs misræmis gæta í þeim frétta- flutningi. Þar eru taldir upp staðir, sem litla eða enga útgerð hafa, en ekki minnst á aðra, t. d. Ólafsfjörð. Vjð Ólafsfirðingar kunnum því illa, að okkar sé að engu getið, þegar talað er um aðrar veiðistöðvar, því Ólafsfjörðujr hefir um nokkurt íjrabil verið stærsta þorsk- veiðistöð norðanlands. Héðan gengu síðpstliðna vertíð milli 30 og 40 trillubátar og 11 dekkbátar. — Útflutn- ingurinn var 1000 smálestir af ísfiski, 680 smál. af söltuðum fiski og um 2000 kassar hraðfrystur fiskur. Þar við bætist svo að bát- ar héðan lögðu upp afla á Siglvíirði fyrir allt að kr. 200,000,00. Eins og í öðrum veiðistöðvum norðanlands, vestan Húsavíkur, kom framkvæmd hins marg umtalaða fisksölusamnings illa niður á okkur, því mjög lítið var ym róðra hér eftir að ís- lenzku og færeyzku skipunum var bannað að kaupa. í því sambandi vil ég geta þess, að verjendur samning^ins hafa ekki sannfært neinn hér um gæði hans, og sennilegt er að sum blöð hafi gert sér pólitíslcan skaða með skrifum sínum um málið. 28. nóvember 1941. Sigurður Baldvinsson. Framh. á 16. síðu VfKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.