Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1948, Blaðsíða 2

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1948, Blaðsíða 2
Tólfta þing F.F.S.Í. Dagana 9.—14. október síðastliðinn var háð í Reykjavík 12. þing F. F. S. í. Til þings komu 35 fulltrúar frá 12 sambandsfélögum, en í sam- bandinu eru nú 16 félög, er áttu rétt á að senda 43 fulltrúa. Þingið var sett í Tjarnarcaíé laugardaginn 9. október klukkan 14,00. Forseti sambandsins, Ásgeir Sigurðsson skipstjóri setti þingið með ræðu. Gat hann um mörg vandamál þjóðfélags- ins, sem á einn eða annan hátt snerta sjávar- útveg og siglingar, er þörf væri að ræða á þing- inu og gera ályktanir um. I ræðulok minntist forseti látinna meðlima F. F. S. I. og bað fund- armenn að votta minningu þeirra virðingu og aðstandendum samúð með því að rísa úr sætum. Fyrsti fundarstjóri var kjörinn Þorsteinn Árnason, annar fundarstjóri Ólafur Þórðarsön. Þingstörf gengu fljótt og vel og ríkti mikill áhugi um velferðarmál íslenzkrar sjómanna- stéttar og útgerðar. Fara hér á eftir flestar helztu tillögur og þingsályktanir, sem samþykkt- ar voru á þinginu: Landhelgi íslands. í framhaldi af samþykktum 11. þings F. F. S. 1. skorar 12. sambandsþing eindregið á Alþingi og ríkisstjórn að segja hið bráðasta upp samn- ingi þeim, er gerður var 24. júní 1901 milli Danmerkur og Stóra-Bretlands, um landhelgi íslands. Jafnframt telur 12. þing F. F. S. í. nauðsyn- legt að landhelgin verði hið fyrsta og eigi síðar en að útrunnum uppsagnarfresti framangreinds samnings rýmkuð í að minnsta kosti 4 sjómíl- ur og til hennar taldir allir firðir og flóar. Ennfremur beinir þingið því til Alþingis og ríkisstjórnarinnar að leitað verði viðurkenning- ar á alþjóðavettvangi á þessari fyrirhuguðu í’ýmkun landhelginnar, og lýst yfir fullum eign- arrétti Islands á landgrunninum umhverfis landið. Landhelgisgœzlan. 12. þing F. F. S. I. skorar mjög eindregið á Alþingi og ríkisstjórn að gjöra nú þegar nýja skipan á stjórn landhelgisgæzlu við strendur landsins á þann veg að hún heyri undir dóms- málaráðuneytið, er feli framkvæmd hennar sér- stökum manni, sem eigi sinni öðrum störfum. Um leið og 12. þing sambandsins harmar það, hve seint hefur verið hafizt handa um útvegun fullkomins strandgæzluskips, lætur það í ljós ánægju sína yfir því að spor er nú stigið í þá átt, og að það skuli um leið vera vísir að skóla- skipi, en sambandið hefur oftsinnis látið í ljós óskir um það. Þingið telur bráðnauðsynlegt að nú þegar verði veitt gjaldeyrisleyfi til kaupa á ratsjá í varðskipið Ægi. Hafnarmál Reykjavíkur. Miklar umræður urðu um hafnarmál Reykja- víkur og kom fram allmikil gagnrýni á stjórn þeirra mála. Samþykkt var að kjósa 3ja manna milliþinga- nefnd til að kynna sér nánar hafnarmálin og fylgjast með framkvæmd þeirra, slcal hún hafa samvinnu við stjórn F. F. S. 1. og skila áliti til hennar eða næsta sambandsþings. 1 nefndina voru kjörnir: Þorvarður Björnsson, Guðbjartur Ólafsson, Þorsteinn Árnason. Sjómannaskólinn. Þingið gjörði ítarlega samþykkt um Sjó- mannaskólann og skipan mála við hann. Helztu atriði voru þessi: Skólinn verði hið fyrsta tekinn í notkun fyrir gagnrýna afglöp Péturs í andsteeöingaflokknum af f>ví Páll flokksbróöir er undir sömu sökina seldur. Afleidingin er alkunn, enda hefur þjó'ðin mátt súpa af því margt görótt seyðið. Víkingur mun fúslega birta góðar athuganir og rökstuddar tillögur um stjórnarskrármálið, jafnt þetta atriði sem önnur. Orðið er laust. G. G. 264 V I K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.