Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1948, Síða 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1948, Síða 7
þeirri stærð er fleygt í bræðslu hér. Og hér á landi er síldarsöltunin ekki ákveðin af vísindamönnum. Það er margt, sem betur mætti fara í þessum efnum. Efnafrœöirt. Vísdómur almennings um hinn sálfræði- og líffræði- lega sjúkdóm, drykkjuskapinn, er hreint ekki svo lítill. — Það getur maður séð í blöðunum. í þeim málum er fólkið komið á svo hátt menningarstig, að það er bók- staflega farið að heimta raunhæfar framkvæmdir undir eins. Og ekki má gleyma því, hve kröftug mótmæli bár- ust til Alþingis frá stórum hóp þjóðarinnar vegna öl- málsins. — í þessum málum virðist þjóðin vera að vakna til virðingar sinnar. -— Þjóðin er farin að skammast sín fyrir ástandið í Hafnarstræti höfuðstaðarins. En hvers vegna sendi ekki öll þjóðin harðorð mót- mæli til ríkisstjórnarinnar, þegar lýsisherzlustöðvarmál- inu var komið fyrir kattanef? Vegna þess, að í fram- leiðsluháttum erum við íslendingar ennþá á hálfgerðu nýlendustigi og illa að okkur. Við seljum hráefnin, en vinnum ekki úr þeim. Þetta er geysileg sóun á gjald- eyrinum, en gjaldeyri vantar okkur tilfinnanlega. Það eru efnafræðingarnir, sem bezt geta leiðbeint okkur í þessu atriði. En ekki er nóg að eiga ágæta efnafræð- inga, ef þeir hafa ekki frjálsar hendur. Vegna fávizku okkar er þúsundum og aftur þúsund- um króna fleygt í sjóinn. Víða úti á landi í smákaup- túnum er fiskiúrgangurinn og síldargrúturinn ekki einu sinni notaður í nýrækt. Verkfrœöin. Hér við land eru útlendingar með allar mögulegar gerðir veiðifæra og skipa, og prófa sig áfram. Svíar hafa gert margs konar tilraunir við síldveiðarnar, reynt að gera þær stórvirkari og þægilegri fyrir fiskimenn- ina, Norðmenn eru með glæsilegustu síldveiðiskipin, þar eru nótabátarnir ekki hafðir í langslefi. Öll síldarskip þeirra geta tekið nótabátana á bátadekk. Þeir salta um borð og hausskera og magadraga sildina í vélum. — Ráðstjórnarríkin hafa sent hingað fljótandi stórborg. Um veiðiútbúnað Rússana er ekkert sérstak að segja, þeir eru aðeins á byrjunarstigi og veiddu aðallega í reknet. En hins vegar er tæknin í flota þeirra mikil, sérstaklega til þæginda og skemmtunar fyrir starfs- fólkið. í birgðaskipinu, sem er í kringum 17 þús. lestir, eru flestar uríaðsendir, sem nútímamenningin hefur upp á að bjóða: Þar er leikhús, bió, danssalur, bókasafn og lestrarsalur og sitthvað fleira. Þarna tekur starfsfólkið sér hvíld og nýtur tómstundanna. Jafnt konur sem karlar starfa á þessum flota. Við hugsun mikið um elliheimili fyrir sjómenn og einnig um minnsvarða um drukknaða sjómenn. — En vær ekki einnig þörf fyrir hvíldar- og hressingarheimili fyrir lifandi og starfandi sjómenn? — Allt þetta er verkefni fyrir verkfræðinga og félagsskap sjómanna. Hagfrœöin. Okkur er sagt, að það vanti að minnsta kosti 200 milljónir upp á þjóðartekjurnar, til þess að þjóðarbú- skapurinn geti gengið eðlilegan gang. — En hvar á að taka þessa peninga? f þessum málum virðist aimenningur á Islandi vera betur að sér en stjórn lpndsins. Fólk álítur t. d. að það þurfi að kaupa fleiri togara en ríkisstjórnin álítur. Þjóðin fær helztu tekjur sínar frá sjávarútveginum. Samt sem áður halda sumir stjórnmálamenn því fram, að yfirleitt sé taprekstur á útgerðinni. Hvernig kemur þetta heim? Hvað er að? Hefur atvinnureksturinn í landi engin áhrif á sjávarútveginn? Hugsum okkur að útgerðarmennirnir sjálfir og fiski- mennirnir hefðu ekki einungis útgerðina í hendi sinni, heldur einnig sína eigin banka, alla þá verzlun, sem snerti útveginn, olíur, kol, fæði og klæði sjómannanna, bæði til heimilisþarfa og sjós, einnig verkstæðin, drátt- arbrautir og skipasmíðastöðvar. Og að allt þetta væri reiknað sem liður í útgerðinni. — Myndi sjávarútveg- urinn þá sýna svo mikið tap, að áhöld væri um það eftir hverja vertíð, hvort hægt væri að halda út þá næstu? Áreiðanlega ekki. En fullkomið svar fæst ekki nema með mikilli rannsókn. Og spurningin verður því sú: hvar er aðalveilan, er hún í sjávarútveginum eða í hinum ýmsu og misgóðu atvinnugi’einum í landi? En svo má ekki gleyma því, að lélegir stjórnmálamenn geta haft eins lamandi áhrif á atvinnuvegi landsins og afla- leysi eða uppskerubrestur. Að einbeita kröftunum. Þjóðin er ofhlaðin af skrifstofufólki og mönnum, sem langar að gerast nokkurs konar gullkálfar á borð við helztu heildsalana, eiga milljónir í innlendum og er- lendum bönkum og ferðast kringum hnöttinn án þess að eiga nokkurt erindi. Þetta verður að breytast, ef vel á að fara. En til þess þarf að breyta ýmsum lög- um landsins. — Það þarf ekki lög um þegnskylduvinnu, heldur lög gegn braski. Hvað ber að gera í sambandi við síldina og útveg- inn? Fyrst og fremst að afla sér eins mikillar þekk- ingar og hægt er, og vinna að því, að í náinni framtíð verði hægt að gera áætlanir. Það þarf að minnsta kosti að fara að byrja á undirstöðuatriðunum í þá átt. í Noregi fara fiskifræðingarnir frá þorpi til þorps og fiytja fiskimönnunum erindi um viðhorfið og rann- sóknir sínar. Þeir íabba við fiskimennina og fá hjá þeim upplýsingar. Við vitum, að íslenzkur fiskimaður, vel greindur, get- ur sagt svo vel frá því, sem fyrir augu ber, að það er sem maður sé sjálfur staddur á staðnum, sem hann segir frá. Áður fyrr, þegar dr. Bjarni Sæmundsson var upp á sitt bezta, starfaði hann mikið meðal íslenzkra sjó- manna, og á tímabili þekkti hver sjómaður hann. Bjarni kveikti áhuga meðal fiskimanna á leyndardómum hafs- ins, íslenzkum náttúruvísindum til mikils gagns. Sjó- mennirnir söfnuðu fyrir hann sjaldgæfum fiskitegund- um af miklum áhuga. Þeir fræddust af honum og Bjarni af þeim. Og að lokum: Hvers vegna eru fiskifræðingarnir og verkfræðingarnir ekki látnir starfa meira á meðal sjó- mannanna meðan vertíð er yfirstandandi? Hvers vegna eru ekki haldin fræðsluerindi þegar fiskimennirnir koma að landi, — þó ekki væri nema í sambandi við dans- skemmtun? — VÍKINBUR 269

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.