Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1948, Side 15
Vélskipið Ingvar Guðjónsson
Barði Barðason, skipstjóri.
17. júlí s.l. var óvenjubjart yfir Siglufjarðar-
bæ.
Árla morguns lagðist fánum skreytt að bæj-
arbryggjunni hið glæsilega fiskiskip, Ingvar
Guðjónsson. Skipið er byggt í Svíþjóð hjá skipa-
smíðastöðinni Rödesunds Bátvarv Karlsborg.
Skipið er byggt úr eik. Stærðarhlutföll þess eru
sem hér segir:
Lengd 32,80 metrar, breidd 7 m., dýpt 3,43 m.
Nettó stærð 82,74 smál., brúttó 186,88. Aðalvél
skipsins er 540 ha. Polar Diesel, auk þess 60
ha. vél, sem knýr spil skipsins og 30 ha. ljósavél.
íbúðir skipsverja eru allar hinar ákjósan-
legustu.
Fremst í skipinu er hásetaklefi fyrir 12 menn,
en aftur á er „káetta“ fyrir 4 menn, auk þess
sérherbergi fyrir stýrimann og 1. vélstjóra.
Undir stjórnpalli er íbúð skipstjóra og þar aft-
an við er matsalur og eldhús. Allar íbúðirnar
eru innréttaðar með maghony, haganlega gerð-
ar og snyrtilegar. 1 öllum vistarverum er renn-
andi kalt og heitt vatn. Baðklefi er í skipinu.
Allar íbúðir skipsins eru hitaðar upp með olíu-
kyndingu.
í Ingvari Guðjónssyni er hér áður óþekkt
spiltegund, svonefnd „hydroliskt trollspil", sem
eru framleidd í Englandi og eru hagkvæm og
kraftmikil. Þetta spil lyftir 12 tonnum.
Ingvar Guðjónsson er stærsta skip, sem siglt
hefur verið í gegnum „Gautakanal", skipaskurð-
inn frá Wetter til Wener. Vakti sú ferð skips-
ins mikla athygli. í reynsluför gekk skipið góð-
ar 11,0 sjómílur, en meðalhraði þess mun vera
um 10,0 sjómílur.
Sú reynslu, sem fengin er af þessu skipi, er
öll hin ákjósanlegasta. Þar hafa engar bilanir
átt sér stað. Þetta glæsilega skip ber nafn skip-
stjórans og aflamannsins þjóðkunna, Ingvars
heitins Guðjónssonar. Hollvættir og hagsýni
höguðu svo til, að skipið kom í fyrstu íslenzku
höfn á 60 ára fæðingarafmæli þessa mæta
manns.
Það er óhætt að fullyrða, að á meðan skip-
stjórn og framkvæmdastjórn er í höndum
þeirra manna, sem nú er, þá mun það halda
nafni Ingvars sál. á lofti með þeim hætti, sem
hann sjálfur mundi helzt hafa kosið. Þar verð-
ur alltaf að finna fyrirmynd á fleiru en eina
sviði.
Eigandi skipsins er H.f. Hervör. Fram-
kvæmdastjóri er Gunnlaugur Guðjónsson. Skip-
stjóri er hinn þjóðkunni aflamaður, Barði
Barðason, 1. vélstjóri Sigurgeir Vilhjálmsson,
stýrimaður Þórhallur Barðason.
VÍKINGUR
277