Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1948, Síða 25
sig við missirinn. Stóru skipin, sem náðu landi
og vissu síðast um ferðir okkar úti á hafi, þegar
veðrið skall yfir, færðu þær fréttir, að ekki væri
hugsanlegt að við gætum verið ofansjávar eftir
svo langvarandi og grimman veðurdag. Fólk-
ið trúir ekki sínum eigin augum, sem horfir á
Margréti sigla sökkhlaðna inn á Isafjarðarhöfn.
Það verður gripið ótta og undrun og þykist vita,
að hér er um missýningu eða dularfull fyrir-
brigði að ræða. Það spurði eins og María forðum,
hvernig svo yfirnáttúrlegt mætti ske, því allir
þekktu, að þetta var Margrét og ekkert annað
skip. Og þrjár vikur liðnar síðan Margrét sigldi
úr höfn. Þetta var allt ofan við skilning fólks-
ins. En þegar nú loks augu fólksins opnuðust
fyrir því, að það væri ábyggilega sama skips-
höfnin, sem sigldi Margréti nú inn á höfn og
sigldi henni út fyrir þrem vikum, og hafði feng-
ið ótvíræða og áþreifanlega sönnun fyrir því, að
við værum í okkar gömlu jarðnesku líkömum,
þá fyrst hófst'' sannur fagnaðarfundur. Þung-
um sorgum og áhyggjum létti nú af hjörtum
vinanna, sem dögg fyrir sólu. Og nú virtist
gleðin vera á hverjum stað. Nú voru þeir sann-
arlega fundnir, sem áður voru týndir og þeir
lifandi, sem dauðir voru taldir.
Þetta haust, 1896, leigðum við Árni „Mar-
gréti“ Helga nokkrum skipstjóra Andréssyni á
Flateyri. Um veturinn hvarf hún þaðan af höfn-
inni og hefur ekkert um hana frétzt síðan, mér
vitanlega. „Margrét“ var óvátryggð og urðum
við Árni að líða þann skaða bótalaust".
Þegar Magnús hafði þetta mælt, varð mér að
orði, að þetta væri bæði merkileg og fáheyrð
sjóferð. —
I því stóð Magnús upp og þakkaði fyrir kaff-
ið. Snýr sér síðan að mér og segir:
„Hér hef ég sagt þér eina sögu úr mínu gamla
sjóferðalífi. Þú átt ekki að skilja hana sem eitt-
hvert karlagrobb, að ég sé með sögunni að gera
mig stærri i annarra augum. Það var nú svo,
að sjómannalífið fyrir 50 árum var stundum
enginn gamanleikur, og þessir ömurlegu hrakn-
ingar okkar þurfa ekki að vera nein sérstök
undantekning frá öðrum slíkum.
Sem betur fer hefur nú orðið stór breyting
í tækni, aðbúnaði og lífskjörum sjómanná.
Við gátum ekki fyrir 50 árum setið í fínustu
stofum í plussstólum í skipum okkar, við nægan
hita og öll þægindi, sem hugurinn girntist. Þá
var takmarkalaus vinnutími og þrældómur, lítið
kaup og engin frí. Hugsaðu þér — segir hinn
gamli sjógarpur, hvernig það myndi ganga núna
að útvega menn á 14 tonna seglbát, og bjóða
þeim upp á gamla aðbúnaðinn og lífskjörin?
Veiztu hvað vinnutími sjómanna á skipum er
langur? Veiztu hvað fæði sjómanna kostaði fyrr
og nú?“
Sjóhetjan forna beið ekki eftir svari, enda
ekki ætlast til svars — réttir mér hönd sína og
kveður með hlýleik.
Emil Tómasson.
„Hœringur“
Síldarbræðsluskipið Hæringur kom til Reykjavíkur
16. október s.l., eftir 7 vikna siglingu frá Portland í
Oregonfylki á Kyrrahafsströna Bandaríkjanna. Fer hér
á eftir lýsing á skipinu. — Er hún eftir Jón Gunnars-
son verkfræðing, sem haft hefur umsjón með breyting-
um þeim, er gerðar voru á skipinu vestra.
Skipið er 6.900 smálestir (deadweight). Lengd 390,5
fet, breidd 50 fet, dýpt 30 fet. Það ristir fullhlaðið
22,75 fet. Áður en því var breytt í verksmiðju rúmuðu
lestar þess 310,000 teningsfet. Geymar eru í botni skips-
ins fyrir um 1400 smálestir af brennsluolíu og um 1,000
smálestir af vatni. Aflvél skipsins er 1800 ha. gufuvél.
Katlar skipsins, sem eru olíukyntir, eru þrír og gerðir
fyrir 210 punda þrýsting pr. ferþumlung. Ganghraði
er um tíu mílur á klukkustund.
Skipið var byggt í Buffalo, New York fylki árið
1901. Þótt skipið sé þetta gamalt, er það samt í ágætu
ástandi. Það var upphaflega smiðað úr smíðajárni. í
febrúarmánuði s.l. var skipið klassað af fyrri eigend-
um þess til fjögurra ára og kostaði sú klössun kr.
330,000,00. Allar breytingar, sem gerðar voru á skip-
inu, til þess að breyta því í verksmiðju, voru gerðar
með samþykki ameríska skipaeftirlitsins, og er skipið
nú í klassa A 1 hjá því.
í skipinu er góð ibúð fyrir um 60 manns, og fylgja
henni fjölda mörg böð og hreinlætistæki. Eldhúsið er
stórt, með fullkomnum tækjum. Þvottahús er í skipinu
mjög- stórt, með þvottavélum, þar á meðal þurrkunar-
og strauvélum. Tvær kæligeymslur eru í skipinu, gerðar
fyrir mismunandi kulda til geymslu á matvælum.
Kaupverð skipsins var kr. 1.251.350,00. Allar breyt-
ingar, sem gerðar voru á skipinu erlendis til að breyta
því í fljótandi síldarverksmiðju, kostuðu samtals kr.
929,500,00. Áður en skipið var keypt, var gerð lausleg
áætlun um kaupverð þess, breytingu þá, sem gera þurfti
til þess að breyta skipinu í fljótandi síldarverksmiðju,
kaup á vélum, aflstöð o. fl., sem kaupa þurfti fyrir
vestan til viðbótar þeim vélum, sem til voru hér heima.
Allur kostnaður við þetta var þá áætlaður kr. 3.300,
000,00 og hefur sú áætlun staðist.
Sjóherinn ameríkanski útbjó pall úr stáli 2 M fet
yfir dekk skipsins og náði sá pallur yfir mikinn hluta
af miðbiki skipsins og þar verða allar síldarvinnslu-
VÍ K I N G U R
2BV