Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1948, Blaðsíða 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1948, Blaðsíða 28
næsti tangi á bakborða, þar sem hún er hæst að framanverðu. Þá á að beygja svolítið suður fyrir merkin, og má bá leggjast hvar sem er inn að landi, og kasta akkerum, en utar en þetta má alls ekki fara út af merkjunum. Varaós í Garöi. Þegar komið er vestan úr Garðsjó í norðanátt, skal gæta þess, að sigla eigi grynnra en „Múl- ana“, það er að syðri endi á Fagradalsfjalli sé lítið eitt uppá Bergsenda (Hólmsbergs), skal svo taka ósinn þegar sundtrén bera saman, og liggur sundið til suður-útsuðurs-, beint í heima- vörina. Þegar menn koma innan að skal gæta þess, að sigla eigi grynnra en fyrr segir („Múl- ana“), og kemur þá þegar vestur er komið Vara-bærinn vestur undan sjávarhúsinu í Vör- um, nokkru áður en trén bera saman; þegar þau (trén) bera saman, skal róa eða sigla inn sömu leið og fyrr segir. Ljósker eru á báðum sundtrjánum. Bakkakotssund í Leiru. Bakkakot er neðsti bær í Leiru að vestan- verðu (nú timburhús). Upp frá Bakkakoti er varða með sundtré, og á hún að bera yfir vest- urenda hússins (Bakkakots) á leiðinni, sem liggur til landnorðurs (suðausturs). Enginn skyldi leggja á sund þetta þegar lág- sjávað er. Stórhólmssund í Leiru liggur lítið eitt austar en Bakkakotssund og er það betra með lágsjávuðu. Þegar sundið er farið á Bakkakotssundtréð að bera í annað sundtré, sem stendur nær sjónum. Leið þessi er haldin í suður-útsuður (S.S.V.), unz komið er rétt að klöpp, sem er að sunnanverðu við leiðina. Verður að halda sem næst henni, því rif er hinum megin, en þegar komið er inn fyrir það, á að halda til landsuðurs inn í vörina. Njarðvíkur. Með Vogastapa er góð leið allt upp uridir land, eri 200 faðma frá Hákotstöngum; þeir skaga lengst til norðurs frá Innra-Njarðvíkur- hverfi, en „Klapparnef“ lengst til austurs frá Ytra-hverfinu. Austan og norðan við það er góð leið, og ágæt lending sunnan við það. Hér er brim aldrei hættulegt og engin útsker, nema grunnt á Víkinni og lítið „Skarfasker“ rétt fyr- ir utan Ytra-hverfið, nokkra faðma frá landi, það kemur upp um fjöru; þaðan er góð leið með landi út fyrir Vatnsnes. Á því norðanverðu er lending allgóð. í Njarðvíkum eru flestar lendingar góðar, nema í norðanátt í Innra-hverfinu. Hér skal 290 sérstaklega lýst lendingunni í Narfakoti, sem er vestasti bær í Innra-hverfinu. Hún er vestan við skúrana við sjóinn. Klettar eru til beggja hliða ofan til. Austan við vörina er lítið sker, „Snasi“, hann kemur upp í meðalsmástraums- fjöru, hann er 70 faðma frá háu klettunum aust- an við vörina. Leiðin liggur lítið eitt dýpra af honum og svo beint á sundmerkin (2 súlur, önnur á syðsta skúrhorninu við sjóinn, hin á norðurstafni heyhlöðunnar, austasta húsi við bæinn), en lítið eitt til vinstri, þegar kemur upp undir klettana. í norðanstormi er hér bezt að lenda með hálfföllnum sjó, en verst um stór- straumsflóð. Sé þá mjög mikil kvika, er betra að lenda í „Seilunni“. Leiðin þangað liggur fram hjá vörinni, vestur fyrir tún, ekki nær landi en 120 faðma, þangað til „Seiluvarðan“ (grjót- varða með staur í toppi, nokkuð frá sjó) er laus við malarkampinn, vestanundir túngarðinum, svo beina leið og loks inn fyrir hann að tún- garðinum, þar er kvikulaust, þótt útsjór sé ófær. Sandbotn er í „Seilunni“, 25 faðma breið- ur utan til, þar sem skemmst er milli skerja. Þessa leið geta hafskip siglt inn um stór- straumsflóð. Leið í Suður-Vogum. Þegar leggja skal til lands, verður að gæta að skeri því, er Geldingur heitir (sem flýtur yfir nema um bláfjöru) og liggur út af hinu svonefnda Þóruskeri. Miðin á Gelding eru Keilir um bæinn Stóru-Voga (sem er eina steinhúsið í Vogum nú sem stendur) og Ánhellir (sem er austan til við Brekkuskarð í Vogastapa) á að bera vestan til við Hólmahúsin (sem eru undir Stapanum). Til þess að vera að öllu frí við sker þetta, er bezt að halda aðal-þilskipaleið. Þá á hæsti hnúk- urinn á suðurendanum á Fagradalsf jalli að bera í Fálkaþúfu (sem er austurendinn á Vogastapa, fyrir austan Reiðskarð, þar sem vegurinn ligg- ur upp á hann). Þessari stefnu á að halda inn þangað til Keilir ber sunnan til við Krúnutótt (þ. e. syðsti bær í Vogum, af byggðum bæjum), úr því má halda beint á Keili, en hvorki norðar né sunnar. — Þessari stefnu má svo halda — sé um opin skip að ræða — þangað til Fálka- þúfa ber í Tangahúsið (Kristjánstangahús, það er eyðihús, fyrir sunnan Vogana). Þá er komið á móts við sker, sem er að norðanverðu við leiðina og nefnt er Stóru-Voga-tangi. (Miðið á honum er Keilir beint um Krúnutótt og Fálka- þúfa um Tangahúsið. — Úr því má halda í austur-landnorður inn í lendingu í Stóru- Vogum. Framh. VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.