Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1953, Síða 3

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1953, Síða 3
og frá landinu. Fyrst þegar íslendingar hafa eignazt það stóran flota, að þeir geti sett þau til starfa úti í heimi, fer sá atvinnurekstur að bera hagkvæman arð. Hugsum okkur, að keypt hefðu verið strax eftir stríðið, meðan Islendingar töldust ríkir, eins og 10 Liberty skip, eða skip af Tröllafoss- gerð, og þeim siglt til þessa dags, hvert sem fragtir buðust. Það hefðu ekki verið fáar millj- ónir, sem þau hefðu getað siglt inn í dýrmæt- um gjaldeyri á tímabilinu. Eftir stríðið var hægt að fá þessi skip keypt í Ameríku með mjög vægu verði, því að þeim var flestum lagt upp. Ameríkumenn töldu sér hagkvæmara að leggja skipunum upp og byrja smíði á meira „moderne“ skipum. Þessi skip fóru brátt hækk- andi í verði og eru nú lítt fáanleg, þó að helm- ingi hærra verð sé í boði. Fragtir hafa verið háar allan tímann, jafnvel farið hækkandi á tímabili, vegna stríðshættu, sem um stundar sakir virtist fara vaxandi. Fari nú svo, að þriðja heimsstyrjöldin brjótist út þegar minnst varir, þá stöndum við illa að vígi með siglinga- skip, því að ekki má íslenzki siglingaflotinn við því að mörg skörð séu í hann höggvin, og getur þá svo farið, að við verðum að eiga það undir náð erlendra þjóða að annast flutninga að og frá landinu. Þá má vel vera, að þeir menn, sem nú hrista höfuðið yfir þeirri hugmynd, að íslendingum sé nauðsynlegt að eignast myndarlegan siglinga- flota, sjái að sú hugmynd hefði átt töluverðan tilverurétt. I þau 39 ár, sem þjóðin hefur átt dálítinn vísi að siglingaflota, hefur sá atvinnurekstur, flest árin, borið sig ágætlega, og mun nú vera eina driftin, sem landsmenn reka, sem stór- græðir. Af þeirri staðreynd ætti landsmönnum að vera orðið það Ijóst, að ekki væri fráleitt að auka þann atvinnurekstur. En sofandaháttur- inn hefur löngum orðið okkur íslendingum að falli. Þó að Alþingi íslendinga sitji á rökstól- um næstum allt árið, og þingmenn bollaleggi næstum allt milli himins og jarðar, þá dettur þeim ekki það í hug að líta á þann möguleika til framdráttar þjóðarbúskapnum, sem sigling- ar gætu haft í för með sér. Ennþá borgar þjóðin margar milljónir á ári í erlendum gjald- eyri fyrir leigu á erlendum skipum til flutn- inga til og frá landinu, en hefðu getað verið búnir að snúa dæminu við, og tekið inn miklu fleiri milljónir fyrir leigu af sínum eigin skip- um. Sumir halda því fram, að íslenzkir sjómenn myndu ekki fást til þess að stunda siglingar úti í heimi. Þetta er áreiðanlega hin mesta firra. Ég veit, að stöðugt fjölgar þeim sjómönn- um, sem æskja þess að komast í siglingar, en á þeim vettvangi er lítið að gera hjá okkur, og fara því margir sjómenn úr landi til að fá þá ósk sína uppfyllta, að komast í siglingar. Von- andi kemur sá dagur, að íslenzki siglingaflot- inn geti kynnt íslenzka fánann og íslenzku þjóð- ina út á meðal sem flestra þjóða heims, og þar með lagt varanlegan grundvöll að áframhald- andi sjálfstæði og velmegun íslenzku þjóðar- innar. E. Þ. Jón á lli'ainii Jón á Hrauni var sá maður, er ég heyrði oft- ast nefndan úr Grindavík. Hann var gildur bóndi og einkennilegur í tilsvörum, og fór eink- um orð af þeim. Jón bjó á Hrauni fram yfir miðja 19. öld, einhver mesti bóndi og sjósóknari þar um slóð- ir, fáorður og stilltur. Hann var talinn ágætur formaður. Bróður átti hann, er líka var formað- ur, og var kapp á milli þeirra. Eitt sinn ætlaði Jón að róa í slæmu sjóveðri, þegar engum var fært nema honum. Þegar Jón er á leið til skips síns sér hann að Guðmundur bróðir hans kem- ur a eftir með skipshöfn sinni. Stöðvar hann þá ferð sína og segir í því að hann horfir út á sjóinn: „Ó, nei, ekki má ég það, hann drepur sig, hann Guðmundur bróðir“. Gekk hann síð- an heim án þess að hafa fleiri orð um. Á seinni árum Jóns var hjá honum duglegur vinnumað- ur, er hét Höskuldur. Lá það orð á, að vingott væri milli hans og konu Jóns, sem var miklu yngri en Jón. Eitt sinn þegar kona Jóns var að ala barn, hafði honum orðið að orði, þegar hún var að hljóða: „Mikið líður þú fyrir Hösk- uld“. Þau hjón, Jón og kona hans, sváfu sitt í hvoru rúmi í öðrum enda baðstofu. Nótt eina var það, að fólk vaknaði við dynk mikinn í baðstofunni. Hafði Höskuldur dottið flatur á gólfið inn úr húsdyrum hjónanna. Heyrði fólkið, að Jón stag- aðist á þessu: „Ójá, Höskuldur datt, Höskuldur datt“. Ekki var þess getið, að neitt ósamlyndi hefði þar átt sér stað milli Jóns og Höskuldar eða hjónanna. VÍ K I N G U R 129

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.