Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1953, Síða 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1953, Síða 9
Þorstemn Porstemsson á heimili sinu. Mynáin er tekin, þegar hann varð *ttráeöur. hafði verið aðhafzt á atvinnusviðinu annað en rétt til þess að draga fram lífið. Menn segja að vísu, að á þessu merka tímabili hafi pen- ingunum verið ausið út á báðar hendur af lítilli fyrirhyggju og um skör fram, og er nú líklega eitthvað til í því, en þá má líka taka það með í reikninginn, að á sama tímabili var peningunum ausið upp úr hinni stóru gullkistu landsmanna, fiskibönkunum í kringum landið, fyrir dugnað sjómanna, handa hinum til að ráðstafa. Eins og áður er sagt, hafa togarafélögin verið rekin með stóru tapi síðustu 10 árin, en þjóðarbúið hefur samt sem áður grætt á útgerðinni. Það virðist því vera komið að skuldadögunum og að útvegsmenn yfir höfuð fari að njóta meiri skilnings valdhafanna en hingaðtil, og að fullt tillit sé tekið til núver- andi ástands sjávarútvegsins. En það dugar ekki að taka á þessum málum með neinum silkihönzkum. Það verður fyrst að horfast í augun við raunveruleikann og svo finna ráð til þess, að útvegurinn geti sjálfur staðið undir sér með rekstur, viðhald, endurnýjun og aukn- ingu, þó að togarar kunni að fá stríðsgróða af nokkrum ferðum, sem er að vísu gott á meðan góðu náir, þá er það enginn heilbrigður grund- völlur. Ráðið til þess að útgerðin geti á ofan- greindan hátt staðið undir sér. er ekki það að skattpína fyrirtækin, bæði til ríkis og bæja, ofan á taprekstur, heldur að taka upp þá sjálf- sögðu og skyldugu reglu að heimta enga skatta að neinu leyti, og heldur ekki útsvar, fyrr en fyrirtækin hafa raunverulega grætt, og þá að sjálfsögðu að skattleggja aldrei annað en nettó- gróðann, hinn raunverulega rétta gróða, sem fyrst kemur í ljós, ef nokkur verður, þegar búið er að greiða allt það, sem ég gat um áðan. Sjávarútvegurinn á að mínu áliti að sitja fyrir öðrum með ódýr lán og hagkvæm, og smáútvegurinn jafnvel styrki. Ef hugsað er V I K I N □ U R 135

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.