Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1953, Síða 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1953, Síða 12
Skipstjórinn í „hrafnshreiörinu". það ekki í heljargreipum sínum, og ruggaði og valt meira en nokkurt skip annað, sem ég þekkti. Þetta gamla trausta skip hafði í 30 ár staðizt snoppunga ægis. Nýi tíminn hafði fært því rafmagnsljós og sterka vél, sem knúði það 9 mílur á vökunni. Eins og mörg önnur selveiði- skip, var „Polhavet" byggt úr þykkri eik og þakið „greenhart“. Það var því vel brynjað til að standast hinn grimmilegustu tök stálgreipa íssins. Hinn veðurglöggi skipstjóri sá, að óveður var í aðsigi og lét rifa seglin. Það var erfitt verk og ekki heiglum hent, að fást við beinfrosin seglin. Johan Vartdal hét hinn ágæti skipstjóri okk- ar. Hann er 44 ára gamall og einn kunnasti skipstjóri Noregs á íshafsslóðum. Skipshöfnin var 16 manns, 11 þeirra voru hinir eiginlegu selveiðimenn leiðangursins, tveir voru synir skipstjórans og hinir voru skyldmenni hans. Allt voru þetta ungir menn, frá 17 til 30 ára aldurs. 1 samfloti við okkur var annað skip, „Kvit- ungen“. Skipstjórinn á því skipi var frændi Vartdals. Öskrandi norðvestan stórviðri tafði för okk- ar. Það veður hélzt alla vikuna, sem við vorum á leiðinni til Jan Mayen. Gegnum gloppur í þok- unni komum við auga á þessa hálendu eyju, þetta virki náttúrunnar á þessum norðlægu og eyðilegu slóðum. Sumir telja Jan Mayen mesta illviðrabæli heimsins. Norðmenn hafa veðurathuganastöð á eynni árið um kring. Við höfðum loftskeytasamband við veðurathuganastöðina á hverjum degi, en gátum ekki komizt í land vegna óhagstæðs veð- urs. Auk þess sem þeir sendu okkur veður- fregnir tvisvar daglega, sendu þeir góðfúslega skeyti og kveðjur til vina okkar og ættingja heima í Noregi. Helmingur skipshafnarinnar hafði þjáðzt af sjóveiki á leiðinni norður eftir, en eftir að hún var um garð gengin, snerist hugur og tal allra aðeins um eitt: sel og aftur sel! Skipstjórinn var daginn út og daginn inn uppi í „hrafnshreiðrinu“ (tunnunni á fram- mastrinu), að skygnast eftir rekísnum. Hann kom niður stöku sinnum til að gleypa í sig bita og hita sér, en það var aðeins stutt stund í einu og svo var aftur „setzt í hreiðrið". Allan sólarhringinn var hlustað eftir loft- skeytum frá öðrum skipum, er komin voru lengra norður, til þess að fá fréttir af ísreki og vita hvort vart hefði orðið við selavöður. Norsk lög segja fyrir um hvenær selveiðin megi hefjast. Síðastliðið ár (1946) máttu sel- veiðarnar ekki byrja fyrr en 23. marz, kl. 7 árdegis. Þessi verndunarregla styðst við rann- sóknir á lifnaðarháttum selsins, er framkvæmd- ar voru um nokkurt árabil af Per Höst, hinum þekkta dýrafræðing, fyrir norsku stjórnina. — En skipin þurfa að vera á staðnum að minnsta kosti viku áður en veiðarnar hefjast, til þess að athuga ísrek og aðstæður og reyna að finna selahjarðir. Þetta getur oft kostað mörg hundr- uð mílna siglingu gegnum rekísinn. Frá Jan Mayen sigldum við norður á 74. breiddargráðu. Ekkert nema opið haf. Skip- stjórinn setti stefnuna til vesturs. Næsta dag sáum við fyrstu hafísjakana, ,,útverði“ Vestur- íssins. Brátt sáum við fram undan bjarmann upp af stórísflákanum. Þessi „ísblika" er endurkast frá ís, sem liggur handan við sjóndeildarhring- inn. Nokkrum stundum síðar lögðum við inn í ísbreiðuna. Það var eins og maður kæmi inn í nýja, furðu- lega veröld. Hin snöggu umskipti voru ein- kennileg, kyrrðin varð drungaleg. Litlir ísjakar, í laginu eins og pönnukökur, umluktu okkur. öðru hverju sáum við seli á sundi í auðu renn- VÍKINEUR 13S

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.