Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1953, Blaðsíða 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1953, Blaðsíða 15
Magnús Jensson: Þegar storskipii) Champellion fórst Sjaldgæft mun að stórviðri verði á Miðjarð- arhafi á borð við þau, sem tíð eru á vetrum á Norður-Atlantshafi, en þar getur þó hvesst og gerir stundum, svo að stormur verði með kröppum og kraftmiklum sjó, sem getur orðið hættulegur litlum og lélegum fleytum, sem í þúsundatali stunda fiskveiðar við strendur hinna ýmsu landa, sem þar liggja að sjó. Enda kemur stundum fyrir, að þessir illa útbúnu bát- ar týna tölunm og nokkur mannslíf fara forgörð um. Hitt mun þykja tíðindum sæta, að stórt far- þegaskip, eða svokallað línuskip, fari sér að voða á þessum slóðum, jafnvel þó að allt geti komið fyrir í dimmviðri, sem orsakar aukna árekstrarhættu á þessu fjölfarna hafi. Það vakti því ekki alllitla athygli í löndunum við Miðjarðarhaf og reyndar um allan heim, er hið stóra og glæsilega 12,500 lesta franska farþegaskip Champellion fórst í brimgarðinum nálægt Beirut, höfuðborg Libanon, í febrúar- mánuði síðastliðnum. Skipið, sem oft var kall- að „drottning Miðjarðarhafsins“, var á venju- legri áætlunarsiglingu milli stórhafnanna við austanvert Miðjarðarhaf og hafði innanborðs 111 farþega auk áhafnarinnar, sem var 212 manns, er það sigldi á land í stormi og brimi, skammt frá Beirut. Strax og skipið kenndi grunns, var það ofur- selt brimgarðinum og ekki við neitt ráðið. Það hallaðist brátt frá landi, móti sjóunum og tók þegar að brotna ofan af því, auk þess sem skrokkurinn rifnaði um miðju. Engum björg- unarbát varð komið út frá skipinu og virtist fátt ráða til björgunar þessum mörgu manns- lífum, því að ekki varð komizt að skipinu frá sjó, en í landi var ekkert um slysavarnir eða björgunartæki. Skipstjórinn ráðlagði því þeim, er syntir voru, að reyna að bjarga sér í land á sundi, og fóru 50 menn að þeim ráðum, með þeim árangri, að 15 þeirra fórust. Brátt safnaðist múgur og margmenni á strandstaðinn, eða eftir því sem talið var, um 250.000 manns. Fiskimenn frá Beirut, ásamt flóttamönnum frá Palestínu, er bjuggu í flótta- mannabúðum í nágrenninu, hrundu hvað eftir annað hinum litlu bátum sínum á flot, í tilraun til að komast út að skipinu, en þá rak jafnskjótt til sama lands eða hvolfdi í brimgarðinum. — Slökkvilið Beirutborgar var þá sent á vettvang, en gat að sjálfsögðu lítið aðhafzt með þeim tækjum, sem það hafði yfir að ráða. Aðalverk þess varð því að halda uppi reglu meðal mann- fjöldans og hirða það, sem að landi rak. Þannig liðu tveir sólarhringar milli vonar og ótta hinna mörgu, sem enn voru um borð í skip- inu, og þúsunda áhorfenda í landi. Þá tók veður og brim heldur að lægja og nú kom á vettvang enskur tundurspillir, sem dældi út olíu til að lægja brimölduna. Loks tókst hafnarbát frá Beirut að komast til strandstaðarins og hófust þá raunhæfar aðgerðir. Eftir að hafnarbátnum hafði tekizt að kom- ast þrjár ferðir út að skipinu og taka fullfermi af fólki í hvert sinn, var orðið það rólegt í sjó- inn að smærri bátar komust einnig út og gátu aðstoðað við björgunina, þar til allir um borð höfðu komizt lifandi á þurrt land. Að svona vel tókst til við þetta strand, að Hjálparmenn vaða fram í brimgarðinn. Bátur reynir að komast út að skipinu. V I K I N G U R 141

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.