Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1953, Blaðsíða 24
SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
Útgefandi:
Farmanna- og jiskimannasamband íslands.
Ritstjóri og ábyrgðarm.: Gils Guðmundsson.
Ritnefnd:
Júlíus Kr. Ólafsson, Henry Hálfdanarson, Magnús
Jensson, Halldór Jónsson, Sveinn Þorsteinsson,
Birgir Thoroddsen, Theódór Gíslason. — Blaðið
kemur út einu sinni í mánuði, og kostar árgangur-
inn 50 krónur.
Ritstjórn og afgreiðsla er í Fiskhöllinni, Reykjavík.
Utanáskrift: „Víkingur", pósthólj 425, —
Reykjavík. Simi 5653.
Prentað i ísafoldarprentsmiðju h.f.
Smœlki
Jóhannes gamli sögunarmaður er í vinnu hjá sálu-
sorgara sínum. Hann er orðinn gamnll og skakkur af
ævilöngum þrældómi við starf sitt, en vinnst þó
drjúgum.
Prestur: — Þú ert 'nú orðinn aldurhnigjnn, Jóhannes
minn, og ferS bráðum að kveðja þetta mæðusama líf.
Hlakkarðu ekki til þess að mega þá hætta að saga
Jóhannes: — Jú, það veit hamingjan. Sú er eina
huggunin mín nú á gamals aldri, að þeir nota ekki
trjúvið til kyndingarinnar þar í neðra!
Það var verið að jarða konu Jólmnns landsþings-
manns. AS jarðarförinni lokinni fór að sjálfsögðu fram
mikil erfisdrykkja. Skömmu áður en erfinu lauk, lét
þingmaðurinn kalla á grafarana, sem áður höfðu lilotið
góðgerðir í eldhúsinu og bauð þeim eitt glas með öðr-
um gestum. Jón grafari fyllir stórt vatnsglas með
þriggja stjörnu koníaki. Landsþingsmaðurinn veitir
því atliygli og segir við Jón:
— Hér er vatn, til að blanda meS.
Jón grafari: — Ja. sá, sem ekki getur drukkið ann-
aS eins koníak, án þess að lu>lla í það vatni, hann
á ekki skilið að fá neitt, herra landsjiingsmaSur.
*
Sjúklingurinn af nýja heilsuhœlinu: — Eg hef heyrt,
að liér í nágrenninu væri hundrað ára gömul kona. Er
hún dáin ?
■—- Nei, en þegar hún heyrði, að hér ætti að reisa
heilsuliæli, varS hún svo hrædd við að smitast,, nð hún
flutti í annað hérað.
*
Læknirinn hafSi verið sóttur til Matthíasar gamla
í Norðurbæ. Dóttir hans var hrædd um að hann liefSi
fengið lungnabólgu, en læknirinn staðhæfir, að jiað
sé ekki annaS en slæmt kvef. Hann setur upp fimm
krónur fyrir vitjunina.
Matlhías (reiSur) : — Fimm krónur! Hefði það verið
lungnabólga, gátu fimm krónur komið til mála, en það
er af og frá, að ég borgi svo mikiS, fvrst þetta er
ekki annað en kvef!
gúmmístígvél
eru bezt
EIIMKAUMBOD
iOJlvannffergs frteSur
150
VIKINOUR