Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1959, Qupperneq 3

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1959, Qupperneq 3
Svanur Sigurðsson stýrim. Oryggi smábáta Varnaðarorð við slysahættu. Undanfarin ár hefur smá- bátaútvegurinn farið vaxandi á ný á Islandi, sem að líkum læt- ur vegna hagstæðs fiskverðs og lítils útgerðarkostnaðar. Hringinn í kring um landið má sjá fjölda smábáta að hand- færaveiðum, báta allt frá einni rúmlest að stærð og á mörgum þeirra er aðeins einn maður. Á fjölda af þessum báturn eru bátsstjóramir menn, er ekki þekkja alþjóða siglingareglur hið minnsta og kunna þar af leiðandi ekki svo mikið sem að ,,víkja“ rétt. Eru þessir bátar okkur, sem siglum mikið stærri skipum á ströndinni, þymir í augum vegna vankunnáttu bátsstjór- anna, jafnvel í björtu veðri. Nú er að sjálfsögðu stór hluti af sjómönnum þeim, er róa á þess- um smábátum, reyndir sjómenn og haga sér samkvæmt því, en við þekkjum þá ekki frá þeim óvönu, svo óhjákvæmilega verð- ur að liaga siglingu svipað gagn- vart þeim öllum. Tvisvar hef ég orðið sjónar- vottur að því, að bátar hafa siglt þvert fyrir verzlunarskip á „öfugu borði“ aðeins af leik, að því er virtist, því strax og þeir voru komnir fyrir stefni skipsins breyttu þeir stefnu og sigldu í gagnstæða átt við verzl- unarskipið. í bæði þessi skipti þurftu skipin að ,,bakka“ fulla ferð til að forða árekstri, þar sem stjórnendur þeirra höfðu raunverulega ekki rétt til að víkja í öfugt borð, þótt það virt- ist afar auðvelt í augum mann- anna á bátunum, sem auðsjáan- lega vissu ekki hvað siglinga- reglur voru. Mörg fleiri dæmi mætti nefna svipaðs eðlis, sem hægt er áð VÍKINGUR rekja beint til vankunnáttu báts- stjóranna á auðveldustu sigl- ingareglum. Þessir menn athuga ekki að þeir eru að leika sér með sitt líf og þeirra manna, sem með þeim eru á bátunum, því hæglega gæti illa farið, ef stýi'i- menn eða skipstjórar stærri skipa, sem leið eiga um svæði smábátanna, hefðu ekki fulla gát á dutlungum áðurgreindra manna. Sigling í dimmviðri mun þó ávallt hættulegust, og er mikið lán að ekki hafa hlotizt fleiri slys við þær kringumstæður en raun ber vitni um. Að vísu er ratsjáin óimetanlegt öryggis- tæki, en þó ekki það fullkomin, að hægt sé að treysta einvörð- ungu á hana. í logni og sléttum sjó er hægt að greina smábáta í góðri ratsjá, en í kalda, þótt sléttur sjór sé, er illmögulegt að greina bátana frá sjótruflunum, (Clutter) og væru það þá aðeins hljóðmerki frá bátunum, sem gæfu til kynna afstöðu þeirra frá skipunum, en því miður, þá kemur mjög sjaldan fyrir, að smábátar gefi frá sér hljóð- merki, þótt þeir séu alveg í leið skipsins og heyri á hljóði frá þokuhorni þess, að það nálgast. Annað hvort hafa þessir bátar ekki þokuhorn meðferðis eða að stjórnendur þeirra gefa sér ekki tíma til að nota það og treysta algjörlega á forsjónina og stjórnendur hinna stærri skipa, sem oft hafa slæma aðstöðu svo sem fyrr er nefnt. Væri hér þörf skjótrar úr- lausnar á einhvern máta, áður en íleiri slys ber að höndum vegna framan skráðs, og ættu þeir, sem hlut eiga að máli að athuga möguleika á róttækum ráðstöfunum til að auka öryggi sjoiarenda við ísland gagnvart þessari hættu. Þær leiðir, er mér hefur kom- ið til hugar að stuðla mættu að auknu öryggi smábáta, eru: t fyrsta lagi, að dreifa alþjóða- siglingareglunum sérprentuðum til allra þeirra, er stunda sjó- róðra á smábátum, og gætu t. d. fulltrúar skipaskoðunarinnar í hverjum landshluta séð um dreifingu reglnanna. Mættu þær greinar siglingareglnanna, er mesta þýðingu hafa fyrir bátana vera undirstrikaðar eða auð- kenndar á annan hátt. t öðru lagi: að skylda hvern smábát til að hafa meðferðis „ratsjármerki“, sem reisa mætti í bátnum í dimmviðrum og með því auðvelda, að stærri skip sæju bátinn í ratsjám sínum. Það vita allir sem reynslu hafa á þessum málum, að trébátar end- urkasta ratsjáöldum mjög illa, en ratsjáipierki hafa reynzt vel t. d. á ljósduflum á siglingaleið- um og víðar. t þriðja lagi mætti skylda alla báta til að vera með rafmagns- þokuhorn þannig útbúið, að ekki þyrfti annað en að þrýsta á hnapp til að „flauta“. Mætti hafa þetta þokuhorn í sambandi við rafgeymi sem annaðhvort væri hlaðinn í landi eða um borð í bátnum sjálfum þar sem það er hægt. Þessi útbúnaður ætti að auka öryggi sjófarenda að mun og er ekki dýr, hvorki í viðhaldi né stofnkostnaði. Væri engum báts- eiganda vorkunn að leggja út peninga til slíks, ef það mætti verða til þess að forða manns- lífum sem aldrei verða metin til fjár. Flestir smábátar eru hvítmál- 187

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.