Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1959, Blaðsíða 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1959, Blaðsíða 12
Flaskpost En flaska me<5 ett brev pa havet sagte drev fran nagon okand strand. Av en handelse fick jag brevet i min hand, det löd: ,,Mitt namn var Anderson, jag drack ur flaska/n ddrför ar jag död“. Bill Anderson. Úr Sjömannen, það bil 350 þeirra til skila aft- ur. En aðferð þessi hefur reynst vera undirstaðan fyrir framúr- skarandi nákvæmum straumkort- um. Þessar flösku-rannsóknir reynd- ust mjög nytsamar í lok síðustu heimsstyrjaldar. Um öll Evróp- isk höf var fullt af fljótandi tundurduflum, til stórkostlegrar hættu öllum siglingum. En hvar var auðveldast að leita þein’a til þess að gera þau óskaðleg? Albert 1. fursti í Monaco, sem var mikill áhugamaður um haf- fræðileg efni og hafði mikið kynnt sér einmitt með flösku- pósti hafstrauma, gaf sig strax fram til aðstoðar. Aðeins sjö vikum eftir styrjaldarlok, hafði honum tekist að útbúa mjög greinargott straumkort um þetta atriði, er varð til mikilla nota við að eyða tundurdufla- hættunni. Sömu ráðstafanir voru gerð- ar skömmu síðar í Bandaríkjun- um, gagnvart tundurduflahætt- unni á Kyrrahafi. Þar höfðu bæði Bandaríkjamenn og Japan- ir um áratugi stundað straum- rannsóknir með flöskupósti, og þess vegna var tiltölulega auðvelt að gera straumkort, er sýndu með grænni línu þær siglinga- leiðir, er vænta mátti að væru lausar við tundurdufl, og með rauðum línum þær, sem hætta var á tundurduflareki. Fyrir fiskimenn getur það verið gulls ígildi, að þekkja vel strauma við strendur landa og á höfum úti. Árið 1894 setti skotska fiskirannsóknastofnunin sérstakan vísindamann í það starf að rannsaka strauma í Norðursjónum. Hann notaði 2074 flöskur og 1479 trébúta við rannsóknirnar, er urðu framúr- skarandi árangursríkar. Þær urðu til þess að margfalda afla- magn fiskveiðanna. Og hliðstæð- um rannsóknum hefur því verið haldið uppi stöðugt síðan. Flöskur eru einnig notaðar í baráttunni við olíubrák þá, sem myndast frá olíuflutningaskip- um, er þau hreinsa tanka sína í sjóinn. Olíubrákin situr eftir á yfirborðinu og færist þannig um óraleiðir og að ströndum landa. Margar baðstrandir í V,- Evrópu eru að eyðileggjast af þessu. Eneland verður mjög mikið fyrir þessu, og breskir haffræð- invar gera því sitt ítrasta til þess að rannsaka straum við strendur landsins með flöskum og einnig út á hafið. Þeir vonast eftir því, að finna með tímanum bletti á fjörðum eða úti á hafi, þar sem sjávarföll og straumar hafi ekki áhrif á olíuna. 1 gegnum aldirnar hafa þess- ar flöskufregnir verið á ferðinni í sjónum og flutt með sér alls- konar boðskap og tilkynningar. Ef til vill finnur einhver sem þetta les, fyrr eða síðar flösku- póst frá „Flöskuprestinum" séra Georg Philipps í Tacoma í Washingtonfylki í Bandaríkjun- um. Hann var forfallinn drykkjumaður um mörg ár. Eft- ir að hafa verið á drykkju- mannahæli, lærði hann til prests, og árið 1940 tók hann upp á því að nota flöskurnar undan erkióvini sínum, Whisky- inu, til þess að flytja boðskan trúarinnar út um allan heim. Og á þeim tæpum 20 árum, sem síð- an eru liðin, hefur hann og læri- sveinar hans kastað í sjóinn yfir 15000 vín-. öl- og whisky-flösk- um með trúarboðskap prentuð- um á fleiri tungumálum. Hann hefur fengið yfir 1400 svarbréf frá 40 fjarskyldustu löndum — flest frá fólki, sem hefur orðið fyrir sterkum áhrifum af þess- um boðskap og lofar bót og betr- un um lífshegðan. Sjófarendur í neyð hafa oft gripið til þess að senda frá sér flöskupóst. Nokkrir drengir, er * voru á leitarferð á strandlo.igju í Maine-fylki í Bandaríkjunum síðla sumars 1944, fundu rekald, er skolað hafði á land, og hjá « því flöskupóst með þessum orð- um, „Skipið sekkur, SOS-merk- in færðu enga hjálp. Það er á- byggilega vonlaust um okkur. Ef til vill finnur einhver þetta ,ein- hverntíma". Sérfræðingar úr flotanum gátu greint, að rekald- ið var frá ameríska tundurspill- inum Beatty, sem var skotinn í kaf með tundurskeyti 6. nóv- ember 1943 með miklu mann- tjóni. 196 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.