Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1959, Blaðsíða 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1959, Blaðsíða 14
Flestir voru í björgunarvestum. Síðar sagði bátsmaður fyrir sjó- rétti, að bakborðsbátur hefði verið losaður, en áður en hann komst í sjóinn blasti við ný al- varleg hætta. Framhluti skips- ins hafði snúið skynaiiega yfir á bakborða, og svo virtist sem þessir tveir skipshlutar ætluðu að rekast saman. Aftasti stjórn- borðsbátur var því látinn síga. Ekki var auðvelt að koma bátn- um á flot í svarta myrkri og þungum sjó. Olían, sem flaut á sjónum, lægði hann að vísu mjög, en þrátt fyrir það slóst báturinn utan í skipshliðina og brotnaði í spón. Fremsti stjórn- borðsbátur var nú mannaður 18 — 20 mönnum og honum síðan rennt í sjóinn. Skyndilega reið brotsjór frá bakborða yfir Vardefjell, fyllti björgunarbát- inn og hvolfdi honum. Allir, sem voru í bátnum, lentu í sjónum. Niður með hliðum skipsins héngu net, sem voru til að auð- velda mönnum að hanga í, ef slys bæri að höndum. Þessum nétum var að þakka, að flestir björguðust úr lífbátnum. Þeir voru þó mjög kaldir og aðfram- komnir, er tókst að ná þeim upp. Tveir menn drukknuðu, voru það yfirvélstjórinn og kyndari. Áhöfn Vardefjell var nú fækkuð úr 41 manni í 29 menn. Skipstjórinn, 1., 2. og 3. stýrimaður, brytinn og skytta, allir norskir, urðu eftir, með enskum viðvaningi, einum ensk- um og öðrum kanadiskum loft- skeytamanni, á fremri hluta skipsins, sem nú var horfinn út í náttmyrkrið. í dögun sást rétt sem snöggvast til fremri hlut- ans. Hann hvarf þó aftur fljót- lega fyrir fullt og allt sýnum mannanna á afturhlutanum. Mennirnir á afturhlutanum hættu við tilraunir sínar að koma út björgunarbátum. Aftur- hlutinn hallaðist að vísu ískyggi- lega mikið, en ef milliþilin gætu þolað sjávarþungann, var engin hætta á, að skipshlutinn sykki. Að því er virtist hafði skipið brotnað við 6. tankann eða mjög nálægt miðju. Þegar vélafólkið hvarf úr vélarúminu, var búið að stöðva allar hjálparvélar og slökkva elda undir eimkötlunum. En kl. 4.00 á mánudagsmorgun voru varðstöður settar á ný. Katlam- ir hitaðir upp, dælur og hjálpar- hreyflar látið ganga. Hinn mikli halli á skipshlutanum torveldaði mjög þessi störf, allir urðu að leggja sinn skerf fram til að koma þessu í kring. Matvæli og vatn var fyrst um sinn nægt. Eldavélin og flestar matvæla- birgðir voru á afturhluta skips- ins. \ I véladagbók skipsins var eft- irfarandi skráð: „Mánudagur 14. des. 1942. Bakborðsketill í notkun fyrir , ljós og dælur í dag. Sjór er mjög þungur. Þriðjudagur 15. des. 1942. Dælt lofti upp á geyma, og báðir hjálparhreyflar í notkun. Unnið að viðbúnaði aðalvélar og hún sett í gang kl. 16.00 Hæg ferð afturábak". Þetta varð áreiðanlega til bjargar. Neyðarstýrið var tengt og skipshlutanum með því stjórnað. Afturstefninu var beitt upp í óveðrið, sem nálgað- ist fárviðri, og þannig varð var- ist brotsjóum. Oft sást til enskra flugvéla, 198 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.