Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1959, Page 28
f ALBERT BJARNI GUNNARSSON
Þann 19. júní s. 1. barst hing-
að skeyti þess efnis frá Curacao
í Hollensku Vestur-Indíum, að
Albert Gunnarsson hefði látist
af hjartaslagi þar í borginni þá
um daginn, Hann var á sundi,
er andlát hans bar að.
Albert var fæddur á Helli-
sandi þann 6. des. 1929, og voru
foreldrar hans Gunnar Alexand-
ersson sjómaður og kona hans
Svanhvít Hennannsdóttir. Bróð-
ir Alberts er Hermann, ókvænt-
ur, og hálfsystir hans er Guð-
ríður Gunnarsdóttir, gift hér í
Reykjavík. Hann kom á 2. ári
til Jóhannesar Jónssonar tré-
smiðs og konu hans Þorveigar
Árnadóttur, til heimilis Hring-
braut 94 hér. og gengu þau hon-
um í foreldra stað og nutu aftur
ástríkis hans sem foreldrar
væru. Þegar hann var á 4. ári,
kom það atvik fyrir eitt sinn, er
hann var að leik ,með öðrum
börnum á Hauksbryggju hér við
höfnina, að hann féll í sjóinn en
varð bjargað .á seinustu stundu.
Albert lagði stund á málara-
iðn, en lauk ekki því námi. Fór
honum það vel úr hendi, og svo
var um allt annað, sem hann
gerði. Hann var á síldveiði eitt
sumar, og í annað sinn var hann
stuttan tíma við sjómennsku. En
hugur hans stóð til að komiast
til annara landa. Árið 1950 fór
hann með félaga sínum til Fær-
eyja og hafði þar stutta við-
dvöl, til þess að afla sér gjald-
eyris til framhaldsferðar, og
komst þá til Noregs. Þar fékk
hann starf sem kyndari; síðan
var hann lengst á norskum skip-
um, oftast stórum olíuflutninga-
skipum, í siglingum til Suður-
Ameríku og víðar. Síðastliðið ár
réðist hann á sænskt olíuflutn-
ingaskip. Síðasta bréfið til
fóstru sinnar skrifaði hann í
marz s. 1. Hafði hann þá íarið
3 ferðir til New York og var á
Albert Bj. Gunnarsson.
leið til Curacao, en þaðan skyldi
haldið ,með olíufarm til borgar
á Gullströndinni. I júní hefur
svo leiðin aftur legið til Vestur-
Indía. þar sem ævibrautin end-
aði svo skyndilega.
Myndir hafa borizt, sem sýna,
að útförin hefur farið fram há-
tíðlega og með virðuleik að við-
stöddum um 50 manns. Athöfn-
in fór fram í norsku sjómanna-
Jarðsetning í Cyrancao. Skipsfélagar Bjarna við jarðarförina.
212
VÍKINGUR