Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Blaðsíða 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Blaðsíða 12
230—260 þegar mest er um að vera. Fiskmagnið hefur verið frá 30.000—50.000 lestir af blaut- verkuðum fiski. 48.500 var magnið á árinu sem leið. Sumir eru með lítið magn. Afla af einni trillu, en aðrir eru stærri í sniðum og gera út marga báta. Hraðfrystihúsin verka lika saltfisk, þegar mikið berst á land af afla. Stærstu framleiðendurnir eru með 800—1200 tonn af fullstöðn- um, saltfiski en það eru 3—4000 lestir af fiski upp úr sjó. — En sjálf saltfiskverkunin. Hvernig er vinnunni hagað? — A því sem ég nefni gamla vetrarvertiðarsvæðið, það er að segja á svæðinu frá Hornafirði og vestur á Vestfirði, hefur yfirleitt veiðst stór og fallegur fiskur, sem er sjö kíló upp úr sjó, eða ríflega það, 6—8 ára gamall og eldri. Sára lítið hefur veiðst af fiski, sem er smærri en þetta. Teljum við þetta vera mjög góða nýtingu, því fiskurinn eða stofninn gefur mest af sér á þessum aldri. Þessi fiskur veiðist frá áramótum og fram á vordaga og er uppistaðan í aflanum á svæðinu. — Ef lýsa á vinnulagi og verkuninni, þá liggur beinast við að lýsa vinnslunni í Þorbirni hf., sem ég veiti forstöðu og þekki best. Saltfiskverkun með nútímasniði — Við höfum byggt upp, smárr saman frá árinu 1953, fisk- verkunarhús, sem eru nú um 250C fermetrar að gólffleti, en sum húsin eru tveggja hæða. Þarna er tekinn afli af 5—6 bátum, allt árið um kring svo að segja, og að öllu leyti á vetrarvertíðum, frá desem- ber fram í júní, júli á sumrin. — Á veturna er fiskinum landað óslægðum. Hann er aðeins blóðgaður um borð í veiðiskip- unum, en á sumrin er hann slægð- ur samkvæmt lögum og reglum þar að lútandi. Hluti bátaflotans í Grindavík. Þessi öflugi floti hefur gert Grindavík að einn stærstu verstöð landsins. U U l Tómas Þorvaldsson fyrir framan hluta af starfsstöð Þorbjörns hf. í Grindavík, eða nánar til tekið hann er fyrir framan verbúðina þar sem útgerðarmenn hans búa. 196 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.