Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Blaðsíða 45
skyldutengsla sem hljóta að vera
eðli allra heilbrigðra manna.
Bjarni var sonur Páls P. Bergs-
sonar kaupmanns og útgerðar-
manns í Ólafsfirði og síðar Hrísey
og konu hans Svanhildar Jörunds-
dóttur. Foreldrar Bjarna eru löngu
þjóðkunnir svo að óþarft er að
kynna þá hér sérstaklega. Þau áttu
13 börn sem alla tíð hefur þótt
umtalsvert og var Bjarni hinn 7. í
röðinni, hvort sem talið var ofan
frá eða neðan. Öll þessi börn sem
náð hafa þroskaaldri eru nýtir og
þekktir borgarar. Þar má nefna
Hrein sem háseti á gamla Gullfossi
söng sig fastan við íslenzkan al-
menning, þegar hann hafði fata-
skipti og auglýsti söngskemmtanir
í Nýja bíói. Þessar söngskemmtan-
ir þóttu takast vel og enn þá njót-
um við hinna gömlu og hugljúfu
laga og hinnar vinsælu raddar
hans. Þá má nefna Gest hinn vin-
sæla leikara. Þá má nefna Guð-
rúnu síðari konu Héðins Valdi-
marssonar, Jörund arkitekt, Berg
skipstjóra, Svavar framkvæmda-
stjóra Sementsverksmiðjunnar á
Akranesi o.fl. Því miður brestur
mig minni til að tilfæra og birta
hér fullkomnar upplýsingar um
þessa gagnmerku og fjölmennu
tjölskyldu, enda ekki ætlun min að
gera fjölskyldunni verðskulduð
skil.
Bjarni ólst upp á fjölmennu
heimili og í stórum systkinahópi.
Þar virðast hafa verið viðurkennd
og metin hin gömlu viðhorf til til-
verunnar, vinna, ástundun og
dugnaður. Hann ólst upp eins og
fyrr segir í stórum hópi systkina við
þeirrar tíma menningarstrauma,
söng, hljómlist, ungmennafélaga-
áhrif og aðra viðreisnarstarfsemi.
Hann mun snemma hafa gert sér
ljóst að hann væri ábyrgur þjóðfé-
lagsborgari og hagað sér eftir þvi.
Bjarni var þríkvæntur eins og
séð verður í hinni góðu bók Vél-
stjóratali. Fyrsta kona hans var
Guðbjörg Guðmundsdóttir, sem
dó af slysförum eftir rúmlega eins
árs hjúskap og hlýtur það að hafa
markað eftirminnileg spor í lífi
þessa unga manns. Önnur kona
var Asta Jónasdóttir (Kristjáns-
sonar læknis). Þau áttu þrjú börn,
öll þekktir borgarar eins og þau
eiga ætt til. Svanhildi gifta Sigurði
A. Magnússyni, Jónas efnaverk-
fræðing og Svavar rafmagnsfræð-
ing. Þau hjón Bjarni og Ásta slitu
samvistir 1947. Þriðja kona Bjarna
er Matthidlur Þórðardóttir. Með
henni virðist Bjarni hafa fundið
góðan lífsförunaut og vinsamlega
og góða stjúpmóður fyrir börn sín
á viðkvæmum aldri. Hún náði
strax fullum trúnaði og vináttu
þeirra og allt virtist benda til
bjartari framtíðar og rólegri daga
á síðara hluta lífsleiðarinnar.
Bjarni var glæsimenni, sem
hvarvetna vakti athygli. Hann var
höfðingi heim að sækja, tryggur
vinur og eftirminnilegur persónu-
leiki. Vélstjórastéttin má vera stolt
af honum og samferðamenn
hans og starfsbræður minnast hans
með virðingu og söknuði. Þessi
minning kemur að sjálfsögðu
nokkuð seint, en það var ekki hægt
að draga hana lengur.
Desember 1975
Guðfinnur Þorbjörnsson
Ms. Hvítá
Ms. Skaftá
Ms. Selá
Ms. Langá
HAFSKIP HF.
Skrifstofa Hafnarhúsinu, Sími 21160
Simnefni: Hafskip.
Telex 2034
SPARIS JÓÐUR
VÉLSTJÓRA
Hátúni 4a
(á homi Laugavegs og Nóa-
túns)
Afgreiðslutími kl. 09,30—15,30
og 16,30—18,00
Við bjóðum viðskiptavinum vor-
um upp á alla almenna þjónustu
og næg bílastæði
28577
V í K I N G U R
229