Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Blaðsíða 43

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Blaðsíða 43
hreyfa við þessum merkjum; færa þau úr stað, hvort sem var á ströndinni eða á sjó úti. I slíkum tilfellum var dauðafersingu beitt allt fram til síðustu aldamóta. Stórkostlegt. Eins og allir vita varð mikið skipatjón hjá Bandamönnum í síðasta stríði, vegna þýskra kaf- báta, sem sökktu stundum fjölda flutningaskipa, þótt í vel vörð- um skipalestum væru. Við þessu var aðeins eitt ráð, þ.e. byggja fleiri skip og enn fleiri skip. Frá því að Bandaríkin fóru að hafa afskipti af stríðinu, með flutningum her- gagna og annarra nauðsynja til stríðsrekstursins í Evrópu og til stríðsloka, byggðu þeir 5.450 flutningaskip, þar af á árunum 1942—1943, 2.642 ný skip! VlKINGUR Vitleysa. Flestir vita að fyrsta gufuskip Ro- berts Fulton hlaut nafnið „Cler- mont“, en opinberlega hét það „North River Steamboat“. Sam- tíðarmenn voru ekki hrifnir af skipinu, en íbúar á bökkum Hud- son River kölluðu það „Fulton Folly“, eða Fulton vitleysu. Jafn- vel mágur Fultons, John Stevens hafði ekki trú á framtíð þess og neitaði að gerast hluthafi í fyrir- tækinu. Síðar byggði Stevens þó sjálfur gufuskipið „Phönix“ til flutninga á Delaware fljótinu og varð auðugur maður á útgerðinni. 227

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.