Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Blaðsíða 28
bikarinn fyrir frábæran námsárangur
í vélstjóranámi.*
Heiðurskross sjómannadagsins fyrir
langt og gæfuríkt starf við sjómennsku
hlutu Jón Eiríksson, skipstjóri,
Magnús Guðmundsson, háseti og vél-
stjóri, og Guðmundur Guðmundsson,
bryti.
Gullmerki sjómannadagsins fyrir
frábærlega vel unnin störf í j^águ
samtaka sjéimanna hlutu Jón Sigurðs-
son, formaður Sjómannasambands ís-
lands, og Trvggvi Helgason, formaður
Sjómannafélags Eyjafjarðar. Þeir
hyggjast báðir draga sig í hlé næsta
haust.
Afreksbikarinn hlaut að (Dessu sinni
Einar Friðrik Sigurðsson, skipstjóri frá
Þorlákshöfn, fyrir að hafa bjargað 3
áhöfnum. Tók hann joað fram, að slíkt
væri aðeins liægt að gera með góðri og
samstilltri áhöfn.
Berent Th. Sveinsson, loftskeyta-
maður hjá Landhelgisgæzlunni, tók
viö bikar fvrir hönd allra starfsmanna
Gæzlunnar frá sjómannadeginum í
Revkjavík, fyrir vel unnin störf i síð-
asta þorskastríði. Skal bikarinn
geymdur a.m.k. fyrst um sinn í flagg-
skipi flolans.
Frú Hrefna Thoroddsen og frú Jóna
Gísladóttir lögðu blómsveig á leiði
óþekkta sjómannsins í Fossvogs-
kirkjugarði.
212
VÍKINGUR