Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Page 23
mjölsverksmiðjurnar hafa vegna
lánsfjárskorts dregist stórlega aftur
úr tæknilega, og borga margfalt
orkuverð á við aðra stóriðju í
landinu.
Það má telja að 3 manneldisaf-
urðir hafi þegar farið í gegnum tvö
fyrstu stig vöruþróunarferilsins
þ.e. rannsóknastofuna og til-
raunaverksmiðjuna með tilsvar-
andi fyrstu markaðsleit. Þessar
vörutegundir eru: Kolmunna-
skreið, marningur (hakk) úr kol-
munnaflökum og súpukraftur úr
spærlingi.
Kolmunnaskreið
Kolmunnaskreiðin er einfald-
asta afurðin. Hausskorinn og slóg-
dreginn kolmunni sem jafnvel má
verka með höndunum, er þurrk-
aður i loftblæstri t.d. saltfisk-
þurrkklefum, eða jafnvel bara á
vírnetum úti, pakkað í vírbundna
pappakassa eða striga og seldur til
Nígeríu fyrir verð sem er aðeins
lægra en lægsti verðflokkur á
skreið sem seld er þangað núna.
Smáatriðum í sambandi við fram-
leiðslutilraunirnar hefur verið lýst
áður (Tæknitíðindi Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaðarins Nr. 72,
13. febr. 1976 og Nr. 52, 11. sept.
1974). Frumkönnun á markaði
fyrir kolmunnaskreið í Nígeríu
sem Samlag skreiðarframleiðenda
annaðist nú í vetur, gaf mjög já-
kvæðar niðurstöður. Umboðsmað-
ur skreiðarsamlagsins býður
ákveðið verð, að vísu ekki mjög
hátt til að byrja með og er reiðu-
búinn til að hefja innflutning á
kolmunnaskreiðinni. Hér stöndum
við að því er virðist frammi fyrir
dæmigerðri ákvörðun um þriðja
stig vöruþróunar. Þó er áhættan
öllu minni en venjulegt er við þær
aðstæður, vegna þess að kaupand-
inn í Nígeríu mun greiða fyrir af-
urðirnar og við þurfum ekki að
standa í auglýsinga- eða söluher-
ferð. Áhættan hjá okkur er fólgin í
þvi að hráefnisverð verði of hátt,
VÍKINGUR
þ.e. veiðikostnaður of mikill.
Hvort sem hráefnisverðið þarf að
vera hátt eða ekki er það að sjálf-
sögðu keppikefli að halda vinnslu-
kostnaði í lágmarki, þ.e. finna hag-
kvæmustu vinnsluaðferðirnar með
tilheyrandi vélbúnaði. Að þessu
ætlar Rannsóknastofnun fiskiðn-
aðarin að vinna nú í sumar og
framvegis eftir þvi sem með þarf og
fjárhagsleg geta leyfir. Áður var
sagt að það má framleiða kol-
munnaskreið með hefðbundnum
aðferðum og þeim búnaði sem
þegar er fyrir hendi, eða notkun
véla við einstök vinnslustig. Það er
eftir að athuga möguleikana á að
vélvæða sem flesta þætti þessarar
framleiðslu, endurbæta þurrkun-
araðferðir, gera fullkomnari arð-
semisútreikninga og margt fleira
þarf að athuga sem stuðlað gæti að
hámarks hagkvæmni.
Hraðfrystur marningur
Kolmunnamarningurinn er að
mörgu leyti á svipuðu vöruþróun-
arstigi og skreiðin. Fremur lítið
magn var framleitt í tilraunaskyni
og sent íslensku verksmiðjunum í
Bandaríkjunum. Hafa forstöðu-
menn þeirra sent mjög jákvæðar
umsagnir og eru reiðubúnir til að
taka við verulegu magni, 50—100
tonnum á ákveðnu verði, sem þó er
heldur lægra en nú fæst fyrir
þorskmarning. Aðferðum við þessa
vinnslu hefur einnig verið lýst áð-
ur, en eins og við skreiðarverkun-
ina eru ýmis atriði í sambandi við
vinnsluna sem eftir er að athuga
nánar, geymsluþol marningsins
svo og að gera fullkomnari arð-
semisútreikninga, einkum með til-
liti til ákvörðunar á hráefnisverði.
Það felst örugglega viss fjár-
magnsáhætta í því að reyna að
selja þessa vöru á Bandaríkja-
markaði, en Coldwater Seafood og
Iceland Products virðast vera
reiðubúin að taka hana á sig á
sama hátt og skreiðarinnflytjand-
inn í Nígeríu. Okkar áhætta er hér
eins og áður að mestu fólgin í af-
komu veiðanna, en þó þarfnast
marningsvinnslan líklega mun
meiri fjárfestingar í vélbúnaði en
skreiðarverkunin. Þess ber þó að
geta að dýrasti vélbúnaðurinn
hentar prýðilega til síldarvinnslu.
Súpukraftur
Fisksúpukrafturinn úr spærlingi
er að sumu leyti styttra kominn á
vöruþróunarferlinum en áður-
nefndar tvær vörutegundir.
Rannsóknastofnunin hefur þó í
samvinnu við Hval h.f. í Hvalfirði,
Það er m.a. verkefni hafrannsóknaskipanna að finna nýjar fiskitegundir,
sem nýta má meðan síldar- og þorskstofninn er að rétta við. Myndin sýnir
flota ísl. hafrannsóknaskipa. Merkilegar veiðitilraunir eru ein af forsend-
um „nýrra“ fisktegunda, og vísindamenn í landi verða síðan að skipu-
ieggja vinnslu og gera nýja vörutegund.
207