Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1931, Blaðsíða 7

Náttúrufræðingurinn - 1931, Blaðsíða 7
Grýla hjá Varmá í Ölfusi. Mynd sú af Grýlu, er hér birtist, er tekin af Þorkeli Þorkelssyni for- stjóra VeÖurstofunnar. Er það besta myndin, sem vér höfum sé'Ö af hvernum gjósandi. Grýla (ööru nafni Grýta = lítill pottur) er nú nafnkunnastur goshver hér á landi. Hún liggur svo nærri fjölförnum þjóðvegi, aÖ þangað koma fjöl- margir ferðamenn til að sjá hana gjósa. Hún gýs að jafnaði á tveggja stunda fresti og þeytir vatninu io til 12 m. í loft upp. Eftir gosin er skál hversins tóm, og vatnið sigiÖ ofan í vatnsrásina. Á undan gosun- um smáhækkar vatnið, uns skálin er full; fara þá uppstigandi loft- bólur að ókyrra vatnið, og er þá gosið í vændum. — Af öðrum ís- lenskum goshverum eru þessir helstir: Smiður og Óþerrishola í Haukadal í Biskupstungum, er gjósa 6—8 m.; Ystihver (eða Norðurhver) í Reykjahverfi í Þingeyjarsýslu, er hefir gosið io til 15 m. ■— Geysir í Haukadal var áð- ur mestur goshver hér á landi og nafnkunnastur goshver í heimi. Gaus hann 60—70 m. hátt, þegar mest var. Hann er nú hættur gos- um; mun ekki hafa gosið síðan 1916. Litli-Geysir á Reykjanesi er líka hættur að gjósa. Gaus hann mest 6—8 m. G. G. B. N&ttúrufræðingurinn. X

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.