Náttúrufræðingurinn - 1931, Síða 8
2
Helium.
Eftir Guðm. G. Bárðarsou.
Helium er loftkent frumefni
eöa lofttegund. Það er að mörgn
leyti merkilegt efni og þá er það
ekki síður sögulegt, hvernig og
hvar mönnum tókst að finna það
fyrst.
Um miðja síðustu öld reyndu
heimspekingar að gera sér grein
fyrir því, hve langt menn gætu
seilst eftir áreiðanlegri þekkingu.
Fanst þeim sem rannsóknasviði
voru væri í mörgum greinum tak-
mörk sett, sem eigi yrði seilst yf-
ir. T. d.. hélt einn merkur heim-
spekingur því fram að eigi yrði
vísindamönnum auðið að fá
áreiðanlega vitneskju um það
hver efni væru í stjörnunum út í
geimnum.
Nokkrum árum síðar (um 1860)
tókst, svo sem kunnugt er, þýsk-
um vísindamönnum Kirchoff og
Bunsen að sanna að frumefni (t.
d. málmar), sem blandað er í loga,
lita hann með ýmsu móti og að lit-
rófið (Spektrum) frá loganum
hafði ákveðin sérstök einkenni
fvrir hverja málmtegund er bland-
að var í logann og gerð lýsandi.
A ákveðnum stöðum í litrófinu
komu fram auðkennilegar línur
fyrir hvert frumefni, sem þannig
var gert lýsandi. Línur þessar eru
nefndar Fraunhofers-línur, eftir
þýskum eðlisfræðing, er áður hafði
uppgötvað slíkar línur í litrófinu,
en eigi tekist að finna, hvernig á
þeim stæði.
Bunsen bjó til sérstakan sjón-
auka eða litróf skiki (Spektro-
skop), er gerði mönnum miklu
auðveldara en áður að kanna lit-
rófið. Með þessum rannsóknum
tókst þeim að færa verksvið efna-
fræðinnar út fyrir jörðina út í
himingeiminn. í litrófi sólarljóss-
ins tókst þeim að finna einkennis-
línur ýmsra frumefna, sem áður
voru kunn hér á jörðinni. Var
það sönnun þess að þau væri
einnig að finna i eldhafi sólar-
innar.
Nú tóku aðrir vísindamenn að
nota aðferð þessa til efnarann-
sókna og stjörnufræðingar notuðu
hana til að afla sér vitneskju um
eðli sólstjarnanna. 1868 fann enski
stjörnufræðingurinn Lockyer í
litrófi sólarinnar einkennislínur
efnis, sem enginn vissi til, að
fyndist hér á jörðu. Var hann svo
viss um tilveru þessa efnis í sól-
inni, að hann gaf því nafn og
nefndi það helium (af griska orð-
inu helios = sól). Lengivel heldu
menn að efni þetta fyndist ekki á
jörðinni, þar eð eigi tókst að finna
einkennislínur þess nema í litrófi
sólarljóssins og annara sólstjarna
út í geiminum. En árið 1882 fann