Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1931, Blaðsíða 14

Náttúrufræðingurinn - 1931, Blaðsíða 14
28 NÁTTÚRUFR- svo sjúkir, að þeir gátu enga björg sér veitt, voru of mátt- lausir og rænulausir til flýja út í sjóinn. Tel eg víst, að þeir hafi haft sótthita; fylgdi hósti sýkinni og hrygla í lung- um. Á Kolbeinsá í Hrútafirði sáu menn sjúka seli á sundi, er naumlega gátu flúið undan bát, og var að sjá, sem þeir hikuðu við að stinga sér í kaf. Heyrðust þeir hósta, eins og þeir væru brjóstveikir. Eg skoðaði innýfli nokkurra sela, sem fund- ust nýdauðir í Bæ í Hrútafirði. Voru engin missmíði að sjá á innýflum, nema að lungun voru mjög blóðhlaupin, og virtust talsvert bólgin. Tel eg víst, að einhver næm lungnaveiki hafi orðið selunum að bana. Sumir hugðu, að frosthörkurnar og ísalögin, veturinn á undan, hefðu gengið svo nærri selunum, að þeir hefðu sýkst af afleiðingum þeirra harðinda. Lausfregnir bárust úr öðrum héruðum landsins um svipaða sýki í selum, sem eg veit eigi fullar sönnur á. Væri fróðlegt, ef menn víðar af landinu gætu sent útgef. Náttúrufræðingsins nánari upp- lýsingar um þetta sela-faraldur. G. G. B. Ugltir á Álftanesí. Undirritaður var staddur suður á Álftanesi 22. febrúar síð- astliðinn. Þann dag var austan vindur og talsvert frost (-=- 6,6 — -i- 11,7° C.). Nálægt Breiðabólsstað sá eg snæuglu (Nyctea nyctea [L]), er kom fljúgandi frá sjónum úr norðvestri. Tók þá hrafn einn að áreita hana og etli hana ákaft. Beygði hún þá aft- ur til sjávar. Skömmu síðar flaug hún til norðvesturs og hvarf. Ugla þessi var ekki alhvít. Sá eg greinilega dökkar ]>ver-flykr- ur á brjóst- og kviðfiðrinu. Brandugla (Asio accipitrinus [Pall.]) var skotin ]>arna sama dag. Kom hún fljúgandi af hafi úr norðvestri og flögraði rétt með haffleti. Hefi eg fengið hana til athugunar. Mál (m.m.): Lengd 360, vængjalengd 322, stél 163, legghæð 70, miðtá 87, nef 18. — Eyrugla (Asio otus [L.] ) náðist lifandi í Hafnarfirði í marz í vetur. Hafði særst af skoti, svo að hún gat ekki flogið. Lifir hún enn góðu lífi hjá manni hér í bænum.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.