Náttúrufræðingurinn - 1962, Side 8
150
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
TAFLA I.
Silungsafli í net í Mývatni í júlí—ágúst 1960.
Known catch of char (Salvelinus alpinus) and trout (Salmo trutta) iti Mývatn
July—August 1960.
Dagana (Period) Syðri-Flói Bolir Allt vatnið (The tuhole lake )
6,—15. júlí (July) 1604 398 2002
16.-31. - - 2762 265 3027
1.—15. ágúst (Aug.) 664 682 1346
16.-31. - - 400 658 1058
Samtals (Total) 5430 2003 7433
Flóa, en upp úr mánaðamótunum skipti um, og í ágúst var aðal-
veiðin á Bolum. Yfirleitt má segja, að heildarveiðin hafi minnkað
stórlega, eftir því sem á leið. Yfirlit yfir silungsaflann er í töflu 1.
Fugladauði.
Alls fékk ég upplýsingar um 512 fugla, sem létu líf sitt í silungs-
netjum í Mývatni í júlí og ágúst 1960. Ég tel líklegt, að þetta
sé um helmingur þeirra fugla, sem drápust í netjum á þessunt
tíma, þannig að um 1000 fuglar hafi alls veiðzt í vatninu þessa tvo
mánuði. Af þessum 512 fuglum voru 483 greindir til tegunda og
481 fugl aldursákvarðaður. í eftirfarandi töflum eru ekki teknir
með 29 fuglar, sem vitað var, að farizt liefðu í netjum, en ekki
voru greindir til tegunda.
í töflu 2 er að finna tegundaskiptingu og aldursdreifingu netja-
fuglanna. Taflan sýnir m. a., að um helmingi fleiri ungar en full-
orðnir fuglar drápust í netjum í júlí og ágúst. Langmest veiddist
af þremur andategundum — duggönd, lirafnsönd og hávellu — alls
400 fuglar eða 82,8%.
Tafla 3 sýnir hlutlallstölu unga og fullorðinna fugla, sem veidd-
ust í net í Syðri-Flóa og á Bolum. Á töflunni sést, að um helmingi
fleiri fullorðnir fuglar veiddust í Syðri-Flóa en á Bolum. Var hér
aðallega um duggönd og hávellu að ræða, en fullorðnir fuglar þess-