Náttúrufræðingurinn - 1962, Síða 20
I(i2
NÁTTÚRUF RÆÐ I NGU R I NN
Mynd 4. Hrafnsönd ((Melanilia nigra), vikulegur fjöldi unga (..) og full-
orðinna fugla (----), sem drápust í netjum. Knoiun weekly catch of black
scoter, young (....) and adults (----), in fishing nets.
Mynd 4 sýnir vikulega hrafnsandaveiði. Fullorðins fugls gætti
mjög lítið í heildarveiðinni nema fyrri hluta júlí. Veiðin jókst
mjög liratt síðari helming júlímánaðar. Vikuna 4.—10. ágúst veidd-
ist mest, og stafar það auðvitað af því, að einmitt um það leyti er
mest af hálfstálpuðum ungum á vatninu. Síðan fór veiðin minnkandi,
og síðustu daga ágústmánaðar veiddust aðallega fleygir ungar. Veiði
fullorðins fugls náði hámarki sínu um mánaðamótin júlí—ágúst og
fór síðan minnkandi. Síðasti fullorðni kvenfuglinn náðist 11. ágúst.
Ég tel því ekki útilokað, að einhver hluti kvenfuglanna yfirgefi
Mývatn í ágúst, þ. e. alllöngu áður en ungarnir fara.
H á v e 11 a (C langu la hyemalis)
Talsvert er af hávellu á Mývatni, og er stofninn líklega svipaður
að stærð og hrafnsandarstofninn. Hávellu hefur fækkað mikið á
vatninu á síðustu tímum. Hún er liánorrænn fugl, og hefur m. a.
hlýnandi veðurfari verið kennt um fækkun Iiennar (Finnur Guð-
mundsson 1951). Ég veit ekki til þess, að hliðstæðar heimildir séu
til um fækkun hávellu í öðrum landshlutum. Annars staðar í