Náttúrufræðingurinn - 1962, Page 24
166
NÁTTÚRUF RÆ ÐINGURINN
að einhverju leyti af netjaveiðinni. Mikill hluti af þeim hávellum,
sem farast í netjum, eru fullorðnir varpfuglar, og ánetjast þeir svo
að segja um allt vatnið á sumrin, þó mest í Syðri-Flóa. Það getur
því reynzt erfitt að sporna við fækkun liávellu af völdum netja-
veiði. Ég álít þó, að rannsaka þurfi, live mikið af hávellu ferst í
netjum í Mývatni í maí og júní, og á hvaða stöðum hún kemur
mest í net. Síðan mætti e. t. v. finna einhver ráð til úrbóta.
Ekki er vitað, hvort áraskipti eru að því, hvar á vatninu hrafns-
endur með unga eru. Ef þær eru að jafnaði mest á Bolurn, eins
og sumarið 1960, mætti eflaust minnka hrafnsandadauðann mjög
mikið með því að banna netjalagnir á Bolurn frá 20. júlí og fram
í september ár hvert. Einnig tel ég, að óþarfi sé að leyfa netjalagnir
með löndum fram (innan 60 faðma frá landi) og í Neslandavík
á þessu tímabili.
Loks vil ég benda á, að aðgerðir til verndar fuglalífi Mývatns-
sveitar þurfa ekki að draga úr silungsveiðinni. Fyrr eða síðar hlýtur
hvort sem er að reka að því, að netjalagnir verði takmarkaðar á
einhvern hátt til verndar silungsstofninum.
HEIMILDIR - IIEFERENCES
Clase, H. J. ct al. 1960. A survey of the slavonian grebe at Myvatn, Iceland.
Bird Study 7: 76—81.
Guðmundsson, Finnur 1951. The effects of the recent climatic changes on the
bird life of Iceland. Proc. Xth Int. Orn. Congr. Uppsala.
SUMMARY
Birds killed in fishing nets in Lake Mývatn
in July and August 1960
by
Arnthor Gardarsson.
Lake Mývatn in north-east Iceland is a large (38 km2) shallow (depth mostly
< 4 m) lake situated in a young volcanic district. The lake supports a com-
paratively rich vegetation and animal life. It is well-known for its huge
breecling population of waterfowl, but there is also an important char fishery.
In recent years, vastly increased mechanization has led to a greater fishing
effort in the lake. This has caused increased accidental killing of waterfowl