Náttúrufræðingurinn - 1962, Side 36
178
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
vað á Tungná. Sprungubeltið liggur þar yfir ána. Þaðan hefur
Þjórsárhraun runnið um 130 km veg út í sjó undan strónd Flóans.
En hin hraunin enda ofan á því í misglöggum brúnum, flest eða
öll á kaflanum milli Galtalækjar og Tröllkonuhlaups.
Ráðagerðir hafa verið um það að stífla Þjórsá á þessum slóðum
vegna virkjunar. Á vegum raforkumálastjórnarinnar hafa því verið
gerðar jarðboranir til könnunar á jarðlögum. Af þeint er orðið
ljóst, að hjá Tröllkonuhlaupi eru Tungnárhraunin ekki færri en
5 eða 6, hvert ofan á öðru, en varla heldur fleiri. Við skoðuðum
fáeinar af þessum hraunbrúnum og bárum saman bergið í hraun-
unum. Þau eru öll stórdílótt basalthraun og dílarnir úr hvítu feld-
spati. En þeir eru dálítið misstórir og misþéttir, eftir því hvert
hraunið er, og má nokkuð þekkja hraunin sundur á því og rekja
takmörk þeirra, þar sem brúnir eru annars óglöggar. F.lsa Vil-
mundardóttir jarðfræðinemi, sem var með í förinni, hefur í sum-
ar fengizt við að rekja þessi hraun sundur og saman, og orðið
vel ágengt.
Elsa sýnir okkur fleira fróðlegt. Við Rangá þarna rétt hjá er
Þjórsárhraun hulið þykkum vikri, mest úr Heklu. Þar hefur verið
grafin hola ein mikil, til þess að kanna þykkt vikurlagsins. Hún
er um 1.5 m í þvermál, en um 15 m djúp niður á yfirborð Þjórsár-
hrauns. Holan er ekki fóðruð, og sá ég engan í leiðangrinum, sem
langaði niður í hana.
Nú ökum við norður fyrir Rangárbotna, beygjum til austurs og
erum komin á Landmannaleið eða Fjallabaksveg nyrðri. Við förum
af rennsléttum vikrunum upp háa og bratta brún Sölvahrauns. En
það hraun er kornið úr Heklu, liggur ofan á Tungnárhraununum
og er ólíkt þeim í ýmsu, er t. d. dílalaust. Sölvahraun er samt. rneðal
hinna lörnlegustu Hekluhrauna og hulið þykkum jarðvegi neðan
til.
Af þessu megum við glöggt sjá, hve byggingarstarfsemi Heklu
er ung: Þjórsárhraun um 8000 ára gamalt, ofan á því 4 eða 5
önnur Tungnárhraun, hvert upp af öðru, hið yngsta þeirra um
4000 ára gamalt, og þá fyrst kemur Sölvahraun þar á ofan, eitt al
elztu Hekluhraunum.
Þegar við komum austur að Valahnúkum, blasir við okkur Nýja-
hraun á hægri hönd. Það kom upp úr gossprungu nálægt Kraka-