Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1962, Page 38

Náttúrufræðingurinn - 1962, Page 38
180 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 2. mynd. Bólstraberg í Dyngjum. Ljósm. Guðm. Kjartansson. fyrir það að vera byggt úr bólstrabergi af meira örlæti en títt er. Við klifrum upp að standberginu, sem er brotsár í fjallinu, og skoðum smíðina. Okkur er kennt, að bólstraberg myndist, þegar blágrýtishraun storknar undir vatnsborði. Og enn sveigjum við af slóðinni, nú til norðurs, og ökum þar sem engin leið sýnist vera, þvert yfir Tungnárhraunin öll. En ekkert stöðvar okkur fyrr en stórlljót er framundan: Tungná sjálf. Bílarnir aka fram á háan bakka; neðan við hann er grænn hvamm- ur niður að ánni. Þar tjöldum við. Tjaldborgin rís upp á skammri stund. Þar eru 45 tjöld. Brátt suða prímusar hingað og þangað. Enginn dregur af sér við kvöld- verðinn, enda hefur ekkert matarhlé gefizt síðan á Skarði á Landi, óralangt burtu í huga okkar. En ekki er næðið langt. Klukkan 21 hvín í blístru fararstjórans. Nú skal efnt til keppni í veðurspá, sem allir taka þátt í. Menn fá prentuð eyðublöð og þar skal spá um hitastig, vind, úrkomu og skýjafar. Spáin á að miðast við tjaldstað næsta kvöld, sem ætlað er að verði í Veiðivötnum. Jónas Jakobsson veðurfræðingur, dómari keppninnar, skýrir nokkra af leyndardómum veðurspámennskunnar í heyranda hljóði.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.