Náttúrufræðingurinn - 1962, Page 43
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
185
5. mynd. Kalkhrúður í Blautukvíslabotnum.
Ljósm. Guðm. Kjartansson.
ingu.1 Kalkhrúðrið er kalsíumkarbónat eins og marmari. Það mynd-
ast úr kalki, sem kolsýrumengað uppsprettuvatn gefur frá sér.
Kalkhrúður hefur fundizt á nokkrum öðrurn stöðurn hér á landi,
í Henglinum og á Snæfellsnesi, en hvergi þó eins mikið á einum
stað og hér. Erlendis er það víða notað til liúsagerðar og skreyt-
ingar og heitir þar travertín. Úr því efni voru mörg skrauthýsi í
Rómaborg hinni fornu byggð, og í fundarsal bæjarstjórnar Reykja-
víkur er einn veggur klæddur með innfluttu travertíni.
Þarna við lækina í Blautukvíslabotnum er dálítil vin í eyði-
nrörkinni. Þar vex hvönn, melgresi og nokkrar aðrar af hinum
harðgerðustu plöntutegundum, sem geta boðið sandfokinu byrgin.
Þetta er því tilvalinn staður til þess að taka upp nestið og ræða
lítilsháttar um gildi afstæðishugtaksins í náttúrunni. En það tekur
snöggan endi, þegar það fréttist, að steingervingar finnist í kalk-
hrúðrinu. Allir vilja fá sér slíkar gersemar og jarðfræðingaharnr-
1) Náttúrufræðingurinn 1947, bls. 88.